Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Page 58
U 1981 409
Ofangreindur dómur er nefndur til samanburðar, en samkvæmt dóminum
braust 27 ára gamall maður inn á bamaheimili og átti önnur kynferðismök
en samræði við 4 ára gamla stúlku. Ákærði var dæmdur í 3 ára fangelsi, en
nrinnihluti vildi dæma ákærða í fangelsi í 2 ár og 6 mánuði.
5. LOKAORÐ
Hér hefur verið fjallað mjög almennt um kynferðisbrot og reynt að upplýsa
hvernig meðferð þessara mála er háttað hér á landi. Vonandi má af greininni
sjá hversu vandmeðfarinn þessi málaflokkur er, sérstaklega sönnunarþátturinn.
Þeir sem fjalla um mál þessi sjá að brotaþolum er það mikil raun að þurfa
að mæta fyrir dómi og skýra frá reynslu sinni. Lagt er til að nú þegar verði
hugað að réttarstöðu fórnarlamba kynferðisbrota og þeim tryggður réttur til
málsvara með svipuðum hætti og tíðkast í dönskum rétti.
I grein Jónatans Þórmundssonar, prófessors, um kynferðisbrot í Úlfljóti, 1.
tölublaði 1989, segir á bls. 35 að algengasta refsing fyrir nauðgun sé óskil-
orðsbundið fangelsi í 12-18 mánuði. Skoðun á dómum, sem fallið hafa nýlega,
bendir til þess að refsingar fyrir kynferðisbrot hafi þyngst á allra síðustu árum
og lætur nærri að segja megi að algengasta refsing fyrir nauðgun sé nú 18-
24 mánaða fangelsi.
Ekki er að sjá að slakað hafi verið á kröfum um sönnun nema síður sé eins
og dómareifanir hér að framan sýna, enda örðugt um vik að óbreyttum lögum.
Þá má fullyrða að fjárhæð miskabóta, sem dæmdar hafa verið undanfarið,
hefur hækkað og nú er starfandi nefnd sem fjallar um það hvort æskilegt sé
að tekin sé upp ríkisábyrgð á greiðslum miskabóta til fórnarlamba kynferðis-
brota.
Að lokum má benda á það, að ef til vill geta dómarar einna best svarað
gagnrýni á störf sín með því að benda á ákvæði 61. gr. stjómarskrár íslenska
lýðveldisins, þar sem segir að dómendur skuli í embættisverkum sínum fara
einungis eftir lögunum.
Heimildir:
Ásdís J. Rafnar, Um afbrotið nauðgun, Úlfljótur, 1.-2. tbl. 1980.
Jónatan Þórmundsson, Unt kynferðisbrot, Úlfljótur, 1. tbl. 1989.
Knud Waaben, Det Kriminelle Forsæt, 5. útg., Danmörk, 1991.
Stephan Hurwitz, Kriminalret, specielle del, 5. útg., Kaupmannahöfn 1970.
124