Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Síða 60

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Síða 60
1. INNGANGUR Tæpast hefur það farið framhjá nokkrum í lögfræðingastétt að viðamiklar breytingar voru gerðar á réttarfarslöggjöf samhliða aðskilnaði dómsvalds og umboðsvalds í héraði á miðju sumri 1992. Hafa þessar breytingar mætt mönn- um víða í erli hversdagsins. Hér verður fjallað um nokkur álitaefni er þessum breytingum tengjast. Sum þeirra snúa beint að efni laganna en þó fleiri að framkvæmd. Því fer fjarri að um einhvers konar heildarúttekt sé að ræða á nýjum réttarfarslögum heldur er tilgangurinn sá að koma á framfæri gagnrýni og að vekja umræður um nokkur afmörkuð atriði. Þar sem höfundar hafa í störfum sínum sýslað við heimtu fjárkrafna er helst horft til meðferðar slíkra mála. Fyrst verður vikið að meðferð dómsmála, þá fjallað um aðfarargerðir og að síðustu um nauð- ungarsölu. Rétt er að geta þess sérstaklega að um ýmis umfjöllunarefni er vitnað til greinargerða með frumvörpum að réttarfarslögum og var í slíkum tilvikum stuðst við útgáfur dómsmálaráðuneytisins. 2. ÁKVÆÐI EINKAMÁLALAGA Hér er sjónum einkum beint að þeim ákvæðum laga um nteðferð einkamála nr. 91/1991, EML, sem snúa að meðferð einfaldra skuldamála. Lúta þau atriði helst að undirbúningi málshöfðunar. 2.1 Frágangur stefnu til birtingar Einkamálalögin gera ráð fyrir allviðamiklum frágangi á stefnum sem óskað er birtingar á. I 84. gr. laganna er kveðið á um að sá sem óskar birtingar verði að afhenda frumrit stefnunnar til þess sem birtir auk samrita fyrir hvern stefnda og loks umslög fyrir þá og sjálfan sig. Rök fyrir þessu má ráða af greinargerð með frumvarpinu og eru þau einkum að skapa verklagsreglur vegna afhendingar stefna í ábyrgðarpósti og auk þess að óviðeigandi sé að efni stefnu verði þeim kunnugt sem birt er fyrir ef það er ekki stefndi sjálfur. Þessu ákvæði 84. gr. um frágang hefur ekki verið fylgt út í æsar enda sá galli á að til trafala er að afhenda frumritið þeim sem birtir ef stefndu eru margir og búa í fleiri en einu umdæmi. Ekki ætti að vera mikil hætta á réttar- spjöllum þó að fellt yrði niður ákvæði um sendingu frumritsins fram og til baka. Þá ætti að vera óhætt að sleppa umslagi með nafni stefnanda til endursend- ingar. Hvorki ætti það að vera ofrausn að ætla birtandanum, sem fær greitt fyrir að birta, að kaupa umslag né að ætla honum að rita nafn stefnanda og heimilisfang utan á það. Þá er algengt að lögmenn stefnenda óski birtinga á mörgum stefnum í einu sem síðan má senda til baka í einu og sama umslaginu og spara þannig bæði það fé sem umslögin kosta og eina trjágrein. 126
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.