Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Side 66

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Side 66
beiðandi að gera fjárnám í réttindum gerðarþola til söluandvirðisins. Til að verjast þeirri aðstöðu að slíkt fjárnám falli óbætt hjá garði ef sölutilraun lýkur án sölu, hefur þeirri hugmynd síðan verið hreyft, að til vara sé gert fjárnám í fasteigninni sjálfri. Nauðungarsala á almennum markaði er býsna fátíð. Engin eign hefur verið seld, á þeirri stundu sem þetta er ritað, samkvæmt þessu réttarúrræði í Reykja- vík frá setningu nýju laganna. Það er skoðun höfunda að það hagræði sem felst í aðfararbanni 2. mgr. 43. gr. við nauðungarsölu á almennum markaði sé mikið minna en óhagræðið sem af banninu hlýst við framkvæntd aðfarar- gerða almennt. Fyrst er þess að geta að láðst hefur að tryggja að fjárnáms- beiðendunr sé kunnugt unr sölutilraunir sýslumanns enda er ekki skylt að þinglýsa yfirlýsingu þar að lútandi á eignina. í öðru lagi segja lögin ekkert um það hvað verður um fjárnám sem í góðri trú er gert í trássi við laga- ákvæðið. Tvennt er til ráða, annað hvort að setja ákvæði í lög um skyldu sýslumanns til að þinglýsa yfirlýsingu um sölutilraun á almennum markaði eða fella ákvæðið um aðfararbann úr lögum. 4.2 Frestur til að semja frumvarp til úthlutunar söluandvirðis I 50. gr. NSL er fjallað um frumvarp til úthlutunar á söluverði. í greinargerð með frumvarpinu er sagt að hraða beri frumvarpsgerð. Rökin fyrir því eru m.a. að lyktir um viðurkenningu og tjárhæðir einstakra veðkrafna geti greitt mjög fyrir kaupanda að því leyti sem hann ráðgerir að greiða söluverð með öðru en peningagreiðslu til sýslumanns. Telja verður það verulegan galla á lögunum að ekki er settur sérstakur tíma- frestur á gerð frumvarps. Borið hefur á að samning frumvarpa hafi setið á hakanum hjá störfum hlöðnum starfsmönnum stærstu sýslumannsembættanna. Oft er því raunar borið við að frumvarpsgerð strandi á skorti á upplýsingum um kröfur veðhafa þrátt fyrir að lög standi ekki til þess að stöðva mál af þeim sökum sbr. 4. mgr. 50. gr. NSL. Þetta veldur því að gerðarbeiðendur verða sífellt að vera á varðbergi gagn- vart því að mál þeirra stöðvist, eftirgrennslanir þeirra valda ónæði hjá sýslu- mannni og hætt er við að mestu málafylgjumennirnir verði afgreiddir á undan öðrum. Ekki þarf að hafa mörg orð um hversu óheppileg sú skipan mála er. Lagt er því til að lögfest verði sú regla að innan mánaðar frá samþykki boðs skuli frumvarp vera komið fram. 5. LOKAORÐ Hér hefur verið fjallað um nokkur atriði höfundum hugleikin í þeim tilgangi að vekja lesendur til umhugsunar. Ýmis fleiri atriði hefði sem best mátt tína til en markmiðið var ekki að tæma umfjöllunarefnið og þykir nóg að gert að sinni. Ymsir hafa liðsinnt við samningu greinarinnar og eru þeini færðar þakkir fyrir. 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.