Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Side 68

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Side 68
Á félagaskrá eru nú yfir 800 félagsmenn. Félagsgjald hefur verið óbreytt sl. þrjú ár, kr. 2.900, en þrátt fyrir að heldur hafi dregið úr vanskilum verður þó að telja þau óviðunandi. Formlegir stjórnarfundir voru alls 12. Framkvæmdastjóri félagsins Ragnhildur Amljótsdóttir hefur sagt starfi sínu lausu og færði formaður henni bestu þakkir fyrir vel unnin störf og kvað þær væntingar sem gerðar hefðu verið til hennar hafa staðist. Að lokum þakkaði formaður samstarfsmönnum fyrir samstarfið og tók fram að þeir hefðu gengið frant af eldspúandi áhuga. Fundarstjóri gaf síðan gjaldkera félagsins Sigríði Ingvarsdóttur héraðsdómara orðið og gerði hún grein fyrir endurskoðuðum reikningum félagsins fyrir tímabilið 1. okt. 1992 til 30. sept. 1993. Gjaldkerinn skýrði reikningana ítarlega, en fram koma að tekjur námu alls kr. 3.210.795 og gjöld kr. 1.751.118. Tekjur umfram gjöld voru því kr. 1.459.677. Eigið fé í lok tímabilsins var kr. 5.504.365. Ásdís J. Rafnar hdl. framkvæmdastjóri Tímarits lögfræðinga fór síðan yfir endurskoðaða reikninga tímaritsins, en þeir miðuðust við tímabilið 1. jan. til 31. des. 1992. Heildartekjur voru kr. 3.271.549 en gjöld kr. 1.681.263 og tekjur umfram gjöld því kr. 1.590.286. Eigið fé 31. desember 1992 var kr. 6.077.894. Orðið var gefið laust um skýrslu stjórnar sem og reikninga félagsins en þar eð enginn tók til máls voru reikningamir bomir undir atkvæði og voru þeir samþykktir. Þá var gengið til stjómarkjörs. Fráfarandi formaður Gunnlaugur Claessen ríkislögmaður gaf kost á sér til endurkjörs og var hann kjörinn með lófataki. Sama var um varaformann Dögg Pálsdóttur skrifstofustjóra. Ásdís J. Rafnar hdl. baðst undan endurkjöri í stjórn. Tillaga stjórnar um meðstjórnendur hlaut samþykki fundarins en þeir voru Helgi Jóhannesson hdl., Ingvar J. Rögn- valdsson skrifstofustjóri, Kristín Briem hdl„ Markús Sigurbjömsson prófessor og Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari. I varastjórn voru kjömir Amljótur Bjömsson prófessor, Eiríkur Tómasson hrl., Hallvarður Einvarðsson ríkissaksóknari, Hrafn Bragason hæstaréttardóm- ari, Jón Steinar Gunnlaugsson hrl„ Stefán Már Stefánsson prófessor og Þór Vi lhj álmsson hæstaréttardóm ari. Endurskoðendur voru kjörnir Guðmundur Skaftason fyrrv. hæstaréttardóm- ari og Helgi V. Jónsson hrl. Varaendurskoðendur voru kjömir Allan V. Magn- ússon héraðsdóntari og Sigurður Baldursson hrl. Að loknu stjórnarkjöri þakkað formaður það traust sem félagsmenn sýndu nýkjörinni stjórn. Þá flutti hann Ásdísi J. Rafnar þakkir fyrir ánægjulegt sam- starf og bauð Kristínu Briem velkomna til starfa. Fundarstjóri þakkaði síðan fundarsókn og sleit fundi. Svo samandregið og endursagt Ingvar J. Rögnvaldsson fundarritari 134

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.