Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Page 71
félagsins, en í henni sátu Dögg Pálsdóttir, Sigríður Ingvarsdóttir og Helgi
Jóhannesson. Amljótur Bjömsson, prófessor var nefndinni til aðstoðar við
uppsetningu dagskrár. Nefndin naut jafnframt hollráða Sigmars Ármannssonar,
framkvæmdastjóra og Jóns Steinars Gunnlaugssonar, hrl.
Málþing þetta tókst afar vel og var hið næst fjölmennasta í sögu félagsins
en þátttakendur voru 196.
Bókaðir fundarmenn voru alls 629 sem verður að teljast mjög góð þátttaka
og sýnir almenna þátttöku félagsmanna í störfum félagsins. Þessi mikla þátt-
taka á félagsfundum og málþingi, sem er með því mesta sem verið hefur
undanfarin ár bendir til, að það fundarform og þau fundarefni sem boðið hefur
verið upp á hafi mætt kröfum félagsmanna í þessum efnum.
Stjórn félagsins flytur þakkir sínar öllum þeim, sem tóku að sér að flytja
erindi á fundum og tóku annan virkan þátt í umræðum á fræðslufundum
félagsins.
2. Jólatrésskemmtun
Jólatrésskemmtun var haldin fyrir böm og bamabörn félagsmanna í sam-
vinnu við Lögmannafélag íslands í Átthagasal Hótel Sögu 30. desember.
3. Framkvæmdastjóri félagsins
Ragnhildur Arnljótsdóttir, lögfræðingur, hefur verið framkvæmdastjóri
félagsins um tveggja ára skeið. Ragnhildur hefur nú sagt starfi sínu lausu og
verður starfið auglýst innan fárra daga. Stjóm félagsins þakkar Ragnhildi fyrir
mikið og gott starf sem hún hefur unnið í þágu félagsins. Félaginu var á
sínum tíma mikill fengur af starfskröftum hennar og hún hefur þjónað félag-
inu vel og dyggilega á starfstíma sínum. Að sama skapi er stjóminni mikil
eftirsjá að henni nú en óskar henni velfarnaðar í nýju starfi.
Skrifstofa félagsins er áfram að Álftamýri 9, þar sem Lögmannafélag íslands
lætur félaginu aðstöðu í té endurgjaldslaust. Kann félagið Lögmannafélaginu
bestu þakkir fyrir.
4. Tímarit lögfræðinga
Tímaritið kemur út reglulega undir ritstjóm þeirra Friðgeirs Björnssonar,
dómstjóra og Steingríms Gauts Kristjánssonar, héraðsdómara. Þakkar stjómin
þeim vel unnin störf. Af hálfu stjórnar hefur Ásdís J. Rafnar sem fyrr haft
með höndum framkvæmdastjóm tímaritsins og hefur unnið þar gott starf.
Fjárhagur tímaritsins stendur traustum fótum. Haldið hefur verið áfram þeirri
stefnu, sem tekin var upp fyrir tveimur árum, að greiða ritlaun fyrir greinar.
I samvinnu við framkvæmdastjóra félagsins hefur Ásdís haft umsjón með
ljósritun eldri hefta Tímaritsins sem eru orðin ófáanleg og eru fyrstu heftin
nú komin úr prentun. Þá er hafinn undirbúningur að samningu heildarregisturs
frá upphafi. Ennfremur hefur verið gert sérstakt átak með góðum árangri við
innheimtu ógreiddra áskriftargjalda.
137