Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Page 76
á UfR-dómasafninu. Einnig hefur verið rætt við danska hugbúnaðarfyrirtækið
Text-ware a/s sem hannaði leitarforritið sem nefnt er bogframviser. Hugbún-
aðarfyrirtæki þetta hefur séð um útgáfu á „bókum“ á tölvutæku formi í Dan-
mörku, Svíþjóð, Noregi og Færeyjum. Forráðamenn fyrirtækisins hafa sýnt
verkefninu mikinn áhuga og telja ekkert því til fyrirstöðu að notendaumhverfi
leitarforritsins verði íslenskað og dómasafn Hæstaréttar Islands verði gefið út
í sömu umgjörð og með sömu leitarmöguleikum og UfR-dómasafnið. Þá hafa
þeir óskað eftir sýnishorni af texta og ætla að gera tilboð í þann hluta verksins
sem snýr að því að koma tölvutækum texta inn í kerfið og fullvinna eintök
til dreifingar. i
Félagið stendur frammi fyrir að þurfa láta vinna tímafreka undirbúnings-
vinnu að útgáfunni og felst hún einkum í eftirfarandi:
1. Skönnun á dómasafni Hæstaréttar, breyting á skannaðri mynd í textaskrár,
samlestur og leiðréttingar. Þess má geta að Fróði Bjömsson sem er einn af
stofnendum íslex hf. hefur náð góðum tökum á að skanna íslenskan texta í
tölvu og breyta í textaskrá. Hann hefur nú skannað dómasafn Hæstaréttar
frá ámnum 1985-1989 inn á tölvu og breytt í nær villulausar textaskrár.
2. Gerð skráa yfir tilvitnanir í lög í dómasafninu. Þessar lagaskrár er reyndar
að finna í registrum en fella þarf skrámar saman, grisja tilvitnanir í þeim
tilvikum sem lagagrein kemur oftar en einu sinni fyrir innan sama dóms
og breyta tilvitnunum þannig að vitnað sé í upphafsblaðsíðu viðkomandi
dóms í stað þeirrar síðu þar sem lagagreinin kemur fyrir.
3. Gerð flokkaðs efnisyfirlits (byggt á efnisorðum sem raðað verður eftir
stafrófsröð og einnig fræðilega). Yfirlestur dóma m.t.t. þeirra lögfræðilegu
atriða sem fram koma í hverjum dómi og gerð skrár þar sem fram kemur
við hvaða dóma efnisorðin eiga. Hér má notast við svipaða flokkun efnis-
orða og byggt er á í UflR.
4. Uppsetning texta og merking vegna innlesturs í gagnagrunn. Skipta þarf
textanum niður í tiltekin svið með merkingum sem tölva getur lesið, t.d.
númer máls, málsaðilar, reifun dómsins, héraðsdómurinn, hæstaréttardóm-
urinn og dómsorðið.
Eins og sjá má að hér að ofan hefur verið hafist handa við verk sem kemur
til með að hafa talsvert hagnýitt gildi fyrir lögfræðinga. Það verk að koma
texta dómasafns Hæstaréttar Islands á tölvutækt form er í sjálfu sér grund-
vallarvinna. Sömuleiðis hefur það almenna fræðilega þýðingu að setja saman
lagatilvitnanaskrá og fræðilega efnisorðaskrá sem tekur til dómasafns Hæsta-
réttar íslands í heild sinni. Slíkar skrár koma til með að nýtast við tölvutæka
leit í dómasafninu án tillits til þess hvaða leitarkerfi verður notað og raunar
einnig án tillits til þess hvort dómasafnið verður selt í áskrift til viðskiptavina
eða aðgangur seldur að því um símalínur. Báðir kostirnir koma til greina,
enda markmið félagsins að tryggja sem flestum aðgang að þeim gögnum sem
verið er að vinna að. Þá kemur einnig til greina að gefa skrámar út á prenti
sent lykil að dómasafninu.
142