Tímarit lögfræðinga - 01.09.1994, Page 77
Tölvuvinnsla á dómasafni Hæstaréttar opnar einnig möguleika fyrir ódýra
prentun á sérútgáfum eins og t.d. dómum um vátryggingamál, viðskiptabréfa-
mál, eða sifjarétt, jafnvel í mjög litlu upplagi.
Þótt danska leitarkerfið sem er sérhæft fyrir leit í dómum virðist standa
framar öðrum kerfum sem skoðuð hafa verið eru þó önnur og almennari texta-
leitarkerfi vel nothæf við útgáfu á dómasafninu. Innlend hugbúnaðarfyrirtæki
hafa sýnt mikinn áhuga á verkinu og boðið fram þjónustu sína. Leitað verður
til þeirra ef samvinnan við danska hugbúnaðarfyrirtækið reynist of kostnaðar-
söm eða tæknilegar hindranir standa í vegi.
Fyrir liggur að hin fræðilega og tæknilega vinna sem inna þarf af hendi
áður en útgáfan verður að veruleika er tímafrek og kostnaðarsöm. Hvernig til
tekst ræðst af því fjármagni sem fæst til verksins í formi hlutafjár, styrkja,
e.t.v. lánsfjár og fyrirframgreiðslu á væntanlegum eintökum af dómasafninu.
Fjármögnun verksins er skammt á veg komin en hún hefur hingað til verið í
formi hlutafjár, auk þess sem fáeinar lögmannsstofur hafa í óbilandi trú á
framgang verksins greitt inn á fyrstu útgáfu dómasafnsins. Hluthafafundur
hefur veitt stjórn félagsins heimild til að auka hlutafé í félaginu til að skjóta
traustari stoðum undir fjármögnun verksins.
Ef fjárhagslegur grundvöllur reynist ekki vera fyrir útgáfu dómasafnsins á
CD-diskum mun verða leitað annarra og ódýrari leiða til að veita aðgang að
dómasafninu og kemur þá vel til greina samstarf við aðila sem nú þegar selja
aðgang að gögnum um símalínur.
Ljóst er að verkið mun taka nokkurn tíma en ef áhugi lögfræðinga reynist
vera jafn mikill og forráðamenn íslex hf. vona, má vænta fyrstu útgáfu á
dómasafni Hæstaréttar íslands á tölvutæku formi á fyrri hluta ársins 1995.
Sigwður Tómas Magnússon
143