Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Síða 21

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Síða 21
Reglumar um sérstakt hæfi dómara hafa ekki það eina markmið að tryggja efnislega rétta niðurstöðu. Því er jafnframt vandsvarað, hvenær afstaða dómara til aðila eða málefnis er slfk, að hann telst hlutdrægur, enda liggur sjaldnast nokkuð fyrir um huglæga afstöðu dómara. Gera verður þá kröfu til dómstóla í réttarrfki, að þeir njóti trausts til að byggja niðurstöður sínar á lögum og að þeir láti ekki stjórnast af ómálefnalegum sjónarmiðum. Því getur verið óviðeigandi, að dómari í tiltekinni aðstöðu fari með mál, þar sem slíkt væri til þess fallið, að málsaðilar og almenningur gætu með réttu dregið óhlutdrægni hans í efa. Þetta getur allt eins átt við, þótt dómari sé í raun óvilhallur, en allt að einu verði með skynsamlegum hætti efast um óhlutdrægni hans. Að þessu leyti hefur þetta sjónarmið, sem nefnt hefur verið traustssjónarmiðið, víðtækara gildi heldur en öryggissjónarmiðið.2 3. UM G-LIÐ 5. GR. EINKAMÁLALAGANNA 3.1 Orðalag reglunnar Svo sem áður greinir er regla g-liðar 5. gr. eml. matskennd vanhæfisregla. Það lagaákvæði er orðað með nokkuð öðrum hætti en hliðstæð regla í 7. tl. 36. gr. eldri einkamálalaga nr. 85/1936. Sú regla hljóðaði þannig, að dómari viki úr dómararsæti í máli ef hann: Er óvinur aðilja, eða málið varðar hann eða venslamenn hans verulega fjárhagslega eða siðferðilega, eða annars er hætta á því, að hann fái ekki litið óhlutdrægt á málavöxtu. Lagaákvæði þetta virðist einkum taka mið af huglægri afstöðu dómara og því öðm fremur orðað með hliðsjón af öryggissjónarmiðinu. Vanhæfisregla g-liðar 5. gr. eml. hljóðar hins vegar þannig, að dómari sé vanhæfur til að fara með mál ef: fyrir hendi eru önnur atvik eða aðstæður (en getur í a-f liðar 5. gr„ innsk. höf.) sem eru fallnar til þess að draga óhlutdrægni hans með réttu í efa. Vanhæfisregla þessi er orðuð með hlutlægari hætti en áður var og því frekar í ætt við traustssjónarmiðið. Vafalaust hefur reglan verið sett fram með þessum hætti með hliðsjón af sambærilegum ákvæðum í löggjöf annarra landa. í því sambandi má til dæmis benda á ákvæði danskra og norskra réttarfarslaga.3 2 Páll Hreinsson: Sérstakt hœfi dómara, bls. 222-223. Berhard Gomard: Civilprocessen, bls. 123. Steen Rönsholdt: Om dommeres specielle habiHtet, bls. 285. 3 Akvæði 61. gr. dönsku réttarfarslaganna (rpl.) er svohljóðandi: „Ingen má handle som dommer i en sag, nár der i övrigt foreligger omstændigheder, som er egnede til at rejse tvivl om dommerens fuldstændige upartiskhed". Sambærilegt ákvæði er að fínna í 108. gr. norsku dómstólalaganna og hljóðar svo: „Dommer eller lagrettemedlem kan heller ikke nogen være, nár andre særegne omstendigheter foreligger, som er skikket til á svekke tilliten til hans uhildethet. ...“. 125
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.