Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Qupperneq 27

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Qupperneq 27
legu inntaki hans. Með lögfestingu sáttmálans eru einungis orð hans gildandi lög, en lagatextinn er um sumt ákaflega knappur, meðal annars hvað varðar skilyrðið um, að dómstóll sé sjálfstæður og óvilhallur. Því vaknar sú spuming, hvaða þýðingu niðurstöður og túlkanir greindra stofnana Evrópuráðsins hafa að landsrétti. í 2. gr. laga nr. 62/1994 segir, að úrlausnir Mannréttindanefndar Evrópu, Mannréttindadómstóls Evrópu og ráðherranefndar Evrópuráðsins séu ekki bindandi að íslenskum landsrétti. í athugasemdum við þetta lagaákvæði í greinargerð frumvarps til laganna kemur fram, að ákvæðið sé til að árétta, að þessar stofnanir geti sem fyrr eingöngu kveðið á um, hvort íslenska ríkið hafi efnt þjóðréttarskuldbindingar sínar samkvæmt mannréttindasáttmálanum. Af þessu leiði, að úrlausnir þessara stofnana hafi ekki bindandi áhrif að íslenskum landsrétti. Þær geti þannig ekki haggað gildi íslenskrar löggjafar eða dómsúr- lausnar.12 Samkvæmt þessum ummælum greinargerðar er því síður ástæða til að ætla, að úrlausnir umræddra stofnana á hendur öðrum samningsríkjum hafi áhrif að þessu leyti. Þrátt fyrir 2. gr. laga nr. 62/1994 og framangreindar athugasemdir greinar- gerðar, er óhætt að fullyrða, að úrlausnir Mannréttindanefndar- og Mannrétt- indadómstóls Evrópu hafa þýðingu að landsrétti varðandi reglur réttarfars um sérstakt hæfi dómara. Fyrir þessu eru fordæmi Hæstaréttar og er í stuttu máli ástæða til að gera grein fyrir dómum þessum. Hrd. 1990 2 Maður nokkur var með dómi sakadóms Árnessýslu sakfelldur fyrir refsiverða hátt- semi. Hann áfrýjaði dóminum til Hæstaréttar og krafðist ómerkingar héraðsdóms á þeim grundvelli, að dómarafulltrúi, sem dæmdi málið, hefði verið vanhæfur. Var á því byggt, að forstöðumaður viðkomandi héraðsdómstóls var jafnframt lögreglustjóri sama umdæmis og þar með væri ekki tryggð óhlutdrægni dómstólsins. í dómi Hæsta- réttar var rakið, að Mannréttindanefnd Evrópu hefði komist að þeirri niðurstöðu, vegna kæru á hendur íslenska ríkinu í sambærilegu máli, að um væri að ræða brot gegn 1. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, þar sem dómstóll gæti ekki verið óvilhallur við þessar aðstæður. í málinu komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu, að forstöðumaður héraðsdómstólsins og fulltrúi hans hefðu verið vanhæfír. Var niður- staða þessi meðal annars byggð á því áliti Mannréttindanefndar Evrópu, að almennt yrði ekki talin næg trygging fyrir óhlutdrægni í dómstörfum, þegar sami maður starfi bæði að þeim og lögreglustjóm. Hrd. 1990 92 Málavextir vom þeir, að héraðsdómari taldi sig vanhæfan til að dæma opinbert mál höfðað til refsingar, þar sem hann hafði úrskurðað ákærða í gæsluvarðhald á grund- velli þess að ætla mætti, að hann hefði gerst sekur um refsiverða hegðun og að brot hans varðaði allt að tveggja ára fangelsi, sbr. 4. tl. 67. gr. eldri laga um meðferð opin- berra mála. 12 Alþingistíðindi 1993-1994, A-deild, bls. 805. 131
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.