Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Síða 38

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Síða 38
því nafni, heldur fer það eftir hlutverki hennar og eðli. Sé reynt að draga saman meginatriði þess sem fram hefur komið í dómaframkvæmd EB-dómstólsins má segja að viðkomandi stofnun þurfi að uppfylla eftirtalin skilyrði til að geta tal- ist dómstóll:10 a) að um sé að ræða varanlega stofnun sem mælt er fyrir um í lögum, b) að hún hafi vald til að leysa úr ágreiningsefnum, c) að lögsaga stofnunarinnar sé lögbundin en ekki valkvæð, d) að málsmeðferð fylgi í meginatriðum málsmeðferð fyrir dómstólum og e) að úrlausn sem stofnunin veitir sé bindandi fyrir aðila og sé fullnustuhæf. I a-lið felst það skilyrði að urn sé að ræða opinbera stofnun, þ.e. stofnun sem er hluti ríkiskerfisins, og mælt er fyrir um í lögum. í því felst m.a. að gerðar- dómur, sem aðilar hafa komið sér saman um til að leysa úr tilteknu máli, getur almennt ekki farið fram á ráðgefandi álit.11 Lögbundnir gerðardómar, sem telj- ast hafa nœgileg tengsl við hið opinbera, geta hins vegar beðið um slrkt álit að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.12 í b-lið felst það skilyrði að um sé að ræða stofnun sem hefur það hlutverk að skera úr réttarágreiningi. Þetta merkir að stofnunin verður að hafa það hlutverk lögum samkvœmt að kveða á um úrlausn ágreinings, sérstaklega þeim sem með einum eða öðrum hætti tengist framkvæmd EES-réttar í viðkomandi ríki. í 10 Helstu dómar sem hér koma til skoðunar eru: Mál nr. 61/65 G. Vaassen [1966] ECR 261; mál nr. 43/71 Politi S.A.S. v. Ministry of Finance oftlie Itaiian Republic [1971] ECR 1039; mál nr. 138/80 Borker [1980] ECR 1977; mál nr. 246/80 Broekmeulen v. Huisarts Registratie Commissie [1981] ECR 2311; mál nr. 14/86 Pretore de Salö v. X [1987] ECR 2545; mál nr. 67/91 Direciön General de Defensa de la Competenica v. Asociaciön Espahola de Banca Privada (AEB) and Others [1992] ECR 1-4785; mál nr. 24/92 Pierre Coribau v. Administration de Contributions [1993] ECR 1-1277; mál nr. 18/93 Corsica Ferries Italia Srl. v. Corpo dei Piloti del Porto di Genova [1994] ECR 1-1783. Sjá nánar um þetta álitaefni í riti K.P.E. Lasok: The European Court ofJustice. Practice and Procedure. 2. útg. London 1994, bls. 555-557. Höfundur telur að af dómaframkvæmd EB-dómstólsins megi ráða að eftirtalin atriði séu höfð í huga þegar metið er hvort stofnun geti talist dómstóll (court or tribunal) í skilningi EB-réttar: „1) the composition of the body must be determined by an exercise of or entail a significant degree of involvement on the part of public authority; 2) the body must be entrusted by law with the exercise of certain powers or responsibilities of a public law nature, in particular those relating to the implementation of Community law; 3) its jurisdiction over the dispute must be compulsory and not consensual; 4) its procedure rnust be similiar to that of ordinary courts; 5) it must apply rules of law; and 6) its decisions rnust bind the parties and therefore be enforcable", (bls. 556). 11 Mál nr. 102/81 Nordsee [1982] ECR, bls. 1095. 12 Mál nr. 61/65 Vaassen-mál [1966] ECR, bls. 261 (einkum bls. 273). Sjá einnig mál nr. 109/88 Handeis- og Kontorfunktionœremes Forbund i Danmark v. Dansk Arbejdsgiver- forening (Danfoss) [1989] ECR, bls. 3199 (einkum bls. 3199-3200 og 3224-3225). 142
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.