Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Síða 45

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Síða 45
5. MÁLSMEÐFERÐ FYRIR EFTA-DÓMSTÓLNUM 5.1. Inngangur Um málsmeðferð fyrir EFTA-dómstólnum er mælt fyrir í starfsreglum fyrir dómstólinn sem tóku gildi 1. janúar 1994. Þá er einnig að finna ákvæði þar að lútandi í ESE-samningnum, og þá sérstaklega í bókun 5 við hann. Almennt má segja að meðferð mála sem varða ráðgefandi álit sé í aðalatriðum sú sama og endranær, eftir því sem við á. Hér verður þó að gæta sérreglna sem fram koma í 7. kafla starfsreglnanna (96. og 97. gr.) og 5. kafla þeirra um tungumál. Málsmeðferðinni er skipt í skriflegan og munnlegan hluta. Gert er ráð fyrir að hluti málsmeðferðarinnar sé að jafnaði munnlegur, sbr. 1. mgr. 1. tl. 97. gr. starfs- reglnanna 5.2 Skrifleg málsmeðferð Um skriflega málsmeðferð eru almenn fyrirmæli í 32.-41. gr. Um ráðgefandi álit sérstaklega eru ákvæði í 96. og 97. gr. starfsreglnanna. Megintilgangur með skriflega hlutanum er að undirbúa málið fyrir munnlegan flutning. Þegar beiðni um ráðgefandi álit hefur komið fram ber að senda afrit hennar, bæði í upphaflegri gerð og í enskri þýðingu til ríkisstjóma EFTA-ríkja, eftirlitsstofnunar EFTA, Bandalagsins og framkvæmdastjómar Bandalagsins og aðila málsins, sbr. starfs- reglumar 1. mgr. 97. gr. Þetta er gert til þess að gefa þessum aðilum kost á að leggja fram greinargerðir eða skriflegar athugasemdir fyrir EFTA-dómstólinn í samræmi við 20. gr. bókunar 5 við ESE-samninginn. Frestur til að leggja fram greinargerðir og skriflegar athugasemdir er tveir mánuðir, sbr. 20. gr. bókunar 5. Rétt þykir að gefa ríkisstjómum allra EFTA-ríkja kost á að leggja fram greinar- gerðir og athugasemdir, þar sem niðurstaða málsins getur einnig varðað þau. Um eiginlega meðalgöngu er aftur á móti ekki að ræða í málum af þessu tagi. Eftir að tveggja mánaða fresturinn er liðinn semur framsögumaður (Judge-Rap- porteur) málflutningsskýrslu (Report for the hearing), þar sem atvikum málsins er lýst og dregin em saman sjónarmið í greinargerðum og skriflegum athugasemdum sem fram kunna að hafa komið. Málflutningsskýrslan er send öllum framan- greindum aðilum sbr. 4. mgr. 97. gr. starfsreglnanna. Skýrslan á að vera á því tungu- máli sem málið er rekið á fyrir þeim dómstóli sem sent hefur beiðni. Hún skal einn- ig vera til reiðu á ensku, sbr. 3. tl. 27. gr. og 4. tl 97. gr. starfsreglnanna. Með mál- flutningsskýrslu framsögumanns lýkur skriflegum hluta málsmeðferðarinnar. í tveimur tilfellum gæti málum lokið án þess að munnlegur flutningur færi fram. ífyrsta lagi getur dómstóllinn samkvæmt 2. tl. 2. mgr. 97. gr. starfsregln- anna, eftir að greinargerðir og athugasemdir hafa verið lagðar fram á grundvelli skýrslu framsögumanns og eftir að hafa tilkynnt þeim sem hlut eiga að máli, ákveðið að munnlegur flutningur fari ekki fram. Þetta gildir þó ekki ef aðili hefur óskað eftir að flytja mál sitt munnlega. / öðru lagi getur dómstóllinn lokið máli strax með rökstuddum fyrirmælum, ef hann telur að beiðni um ráðgefandi álit hafí að geyma spumingar sem eru augljóslega sams konar þeim sem dóm- stóllinn hefur þegar dæmt um eða látið uppi álit á. Áður en málinu er lokið með 149
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.