Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Qupperneq 53

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Qupperneq 53
Geitlandi, en byggð er þó talin aflögð tiltölulega snemma, sennilega fyrir árið 1200.4 í Reykholtskirkjumáldaga, sem a.m.k. að hluta til er frá síðari hluta 12. aldar, segir að til kirkjunnar í Reykholti liggi Geitland með skógi. í 17. aldar uppskrift af Vilkinsmáldaga (1397) segir að kirkjan í Reykholti eigi Geitland allt með skógi og sama er tekið fram í visitazíu Steingríms Jónssonar biskups frá 31. júlí 1827. í landamerkjaskrá Geitlands frá 1898 segir að Geitland sé land allt millum Geitár og Hvítár að undanteknu Torfabæli.5 Með afsali frá 27. maí 1926 afsalar dóms- og kirkjumálaráðherra „afréttarlandinu“ Geitlandi, eins og það er þar nefnt, til Hálsahrepps. Er tekið fram, að landinu sé afsalað með öllum gögnum og gæðum. Þó eru undanskildir námar í jörðu og vatnsafl allt, auk „notkunaraðstöðu þess í landi jarðarinnar“, eins og það er orðað í afsalinu.6 Árið 1975 er þinglýst samningi um Geitland milli Reykholtsdals- og Hálsa- hreppa annarsvegar en Landgræðslu ríkisins hinsvegar. Geitland var síðan friðlýst 1988, sbr. auglýsingu menntamálaráðherra frá 3. júní það ár. Segir í auglýsingunni, að samkvæmt tillögu hreppsnefnda Hálsahrepps og Reykholts- dalshrepps hafi Náttúruvemdarráð ákveðið fyrir sitt leyti, að friðlýsa „afréttinn Geitland, sem er eign fyrmefndra hreppa“, eins og segir þar orðrétt. Undir rekstri málsins upplýstu oddvitar hreppanna ennfremur að Geitland væri ekki nýtt að öðru leyti en því, að sveitarfélögin leigðu félaginu Langjökli hf. hluta þess. Loks kom fram, að tilgreiningu í fasteignabók er þannig háttað, að Hálsa- hreppur er talin eigandi 1/3 hluta Geitlands en Reykholtsdalshreppur eigandi að 2/3 hluturn. Ekki lá eða liggur hinsvegar fyrir, svo kunnugt sé, hvernig Reyk- holtsdalshreppur varð meðeigandi Hálsahrepps eftir að síðarnefnda hreppnum var afsalað Geitlandi 1926. 2.4 Niðurstaða héraðsdóms í niðurstöðum héraðsdóms er vikið að tilgreindum heimildum og segir þar, að af þeim megi ráða, að Geitland hafi verið numið og fljótlega eftir það komist í eigu kirkjunnar, þó svo ekki liggi fyrir hvenær það hafí gerst. Síðan hafi Geitland verið í eigu Reykholtskirkju þar til ráðherra afsalar því til Hálsahrepps 1926, á grundvelli laga nr. 50/1907 um sölu kirkjujarða. Ekki verði lögð nein 4 Sjá m.a. Landnámabók: íslenskfornrit I. bindi, fyrri hluti, Jakob Benediktsson sá um út- gáfuna, Reykjavík 1968, bls. 77 og Harald Matthíasson: Landið og Landnáma, I. bindi, Reykjavík 1982, bls. 111. 5 í endurriti úr landamerkjabók Borgarfjarðarsýslu segir, að landamerkjalýsing sé í samræmi við lögfestur Þorsteins Helgasonar frá 1837 og Þórðar Þórðarsonar Jónassonar frá 1876 að öðru leyti en því, að við sé bætt orðunum; „að undanteknu Torfabæli". 6 Um sambærilega tilgreingu er að ræða í fleiri afsölum frá sama tíma, þar sem ríkið er að afsala sveitar- og upprekstrarfélögum og fleirum ýmsum landsvæðum, sem komist höfðu í eigu rikisins, m.a. í gegn um kirkjur og kirkjustaði. Sjá t.d. afsal ráðherra Islands frá 5. júlí 1918, fyrir „afréttarlandinu Auðkúluheiði", sem svo er þar nefnt. Nánar um þetta atriði, Þor- geir Örlygsson, sama rit, bls. 570-571. 157
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.