Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Síða 54

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Síða 54
víðtækari merking í það þó svo Geitland sé nefnt afréttaiiand í afsalinu, enda geti þýðing þess hugtaks verið mismunandi. Ennfremur er vikið að því að ekki liggi fyrir hvernig Reykholtsdalshreppur varð meðeigandi Hálsahrepps, en hinsvegar sé enginn ágreiningur milli sveitarfélaganna um eignarhald á Geit- landi. Kemst dómurinn síðan að þeirri niðurstöðu að Geitland sé landareign í eigu Hálsa- og Reykholtsdalshreppa í skilningi 1. mgr. 2. gr. laga nr. 33/1966 um fuglaveiðar og fuglafriðun og sakfelldi því feðgana. 2.5 Niðurstaða Hæstaréttar í forsendum Hæstaréttar er í upphafi vikið að því, að óvíst sé hvort land- svæði það sem Landnáma nefnir Geitland og segir numið milli Hvítár og Suð- urjökla, sé það sama og nú ber það nafn. Vísar rétturinn í því sambandi til fyrrnefndrar lýsingar í landamerkjaskrá Geitlands frá 1898, þar sem segir að Geitland sé land allt milli Geitár og Hvítár að undanteknu Torfabæli. I niður- stöðum Hæstaréttar segir síðan orðrétt: í kjölfar landnáms virðist Geitland hafa verið fullkomið eignarland. Þegar litið er til hinna elstu heimilda um rétt Reykholtskirkju að Geitlandi virðist það hinsvegar vafa undirorpið hvort landið sé eignarland. þar sem tekið er fram í þeim heimildum að skógur fylgi landi. Heimildir ríkisins til að afsala Hálsahreppi Geitlandi era leiddar af rétti Reykholtskirkju til landsins og leikur þannig vafi á því, hvort það er eign, sem háð er beinum eignarrétti. Þess verður einnig að gæta, að ekki verður ráðið af afsal- inu hvort Geitland telst þar afréttur eða eignarland. Þá verður heldur ekki ráðið af öðrum gögnurn málsins hvort Hálsahreppur og Reykholtsdalshreppur eiga bein eignarréttindi að Geitlandi eða einvörðungu beitarrétt eða önnur afnotaréttindi. Þar sem vafi leikur á unt það, hvernig eignarrétti Hálsahrepps og Reykholtsdalshrepps að hinu umdeilda landi er háttað, ber með vísan til 45. gr. laga nr. 19/1991 um með- ferð opinberra mála að sýkna ákærðu af tilraun til brots gegn 1. mgr. 2. gr. laga nr. 33/1966, sbr. 41. gr. sömu laga, sbr. 33. gr. laga nr. 116/1990, sbr. nú 2. mgr. 8. gr. laga nr. 64/1994. 3. NÁNAR UM RÉTTARSTÖÐUNA FYRIR DÓM HÆSTARÉTTAR FRÁ 3. NÓVEMBER 1994. - KRÖFUR DÓMSTÓLA TIL EIGNAR- HEIMILDA.7 Þessu næst er rétt að víkja stuttlega að því, hvaða kröfur íslenskir dómstólar hafa gert til eignarheimilda í sambærilegum tilvikum, þ.e. þegar deilt hefur verið um eignarrétt að landsvæðum, sem legið hafa utan landareigna jarða eða marka annarra hefðbundinna eignarlanda, ef svo má að orði komast. 7 Sjá nánar um þetta efni Karl Axelsson, sama rit, bls. 82-83; Sigurður Líndal, sama rit, bls. 19 og Þorgeir Örlygsson, sama rit, bls. 568-574. 158
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.