Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Page 59

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Page 59
Reykholtskirkju. En þannig er þetta ekki skráð heldur segir að kirkjan eigi Geitland með skógi. Eftir situr þá sú óleysta gáta af hverju þörf hafi verið á því að tilgreina skóginn sérstaklega, ef kirkjan átti landið hvort eð er? Varpa má fram þeirri tilgátu eða hugmynd að svo kunni að vera vegna þess að um verð- mætustu réttindin á þessu landsvæði hafi verið að ræða og því sérstök ástæða talin til að tilgreina þau eða að aðrir aðilar hafi gert tilkall til skógar í Geitlandi, hugsanlega í formi ítaks, og því talin sérstök þörf á að árétta að eignarréttur kirkjunnar næði, auk annars, til skógar á svæðinu. Hér er þó ekki um að ræða vel ígrundaðar kenningar, heldur miklu frekar hugleiðingar eða tilgátur, settar fram án „frekari ábyrgðar“. Ástæða er til þess að geta þess að tilgreining á eignarheimildum kirkjunnar yfrr Geitlandi er nánast óbreytt frá fyrstu heimildum allt þar til því er afsalað 1928.18 Það verður því að telja það orðalag ónákvæmt í forsendum Hæstaréttar þegar þar segir svo um afsalið frá 1928: „ekki verður ráðið af afsalinu hvort Geitland telst þar [leturbr. mín] afréttur eða eignarland“. Af afsalinu verður þvert á móti ráðið að þeir aðilar, sem að því standa, telja sig vera að höndla með landsvæði sem er háð beinum eignarrétti, hvort sem sú var þó raunin eða ekki. I umræddu afsali undanskilur ráðherra námuréttindi og vatnsafl, auk þess sem Geitland er beinlínis kallað jörð, sbr. þinglýsingabók Borgarfjarðar.19 Vissulega er Geitland líka kallað afréttarland í nefndu afsali, en taka verður undir þá skoðun héraðsdómarans, að sú tilgreining skeri ekki að neinu leyti úr hinni eignarréttarlegu stöðu landsvæðisins, enda er hugtakið notað í víðtækri merkingu, samanber skilgreiningu hér að framan. Þannig getur notkun hugtaksins afréttur bæði vísað til ákveðinnar notkunar, sem og þess að veita vísbendingar um Ibnn eignarhalds. Einn þátt málsins enn er áhugavert að skoða, en það eru heimildir um nýt- ingu Geitlands í gegnum tíðina. Af forsendum héraðsdóms og Hæstaréttar fæst ekki séð að neinar heimildir þar að lútandi hafí verið fyrir hendi við úrlausn málsins. Svo sem fram hefur komið hér á undan hafa bæjarrústir fundist í Geit- landi, en engin byggð virðist vera þar í lok 12. aldar, þegar Geitland er fyrst til- greint sem eign kirkjunnar í Reykholti. Munnmælasögur hafa þó varðveist meðal Borgfirðinga um byggð og búskap í Geitlandi mun lengur, allt fram undir aldamótin 1600.20 Heimildir fyrir slíku eru þó ekki traustar og í Jarðabók Árna 18 í Vilkinsmáldaga frá 1397 er þó talað um Geitland allt með skógi og í landamerkjaskrá frá 1898 er sérstaklega tekið fram að Geitland sé land allt milli Hvítár og Geitár að undanskildu Torfabœli. 19 Þess ber að geta að á þessum tíma höfðu menn orðið talsvert mótaðar hugmyndir um þann mun, sem kynni að vera á á eignarhaldi að einstökum landsvæðum, sérstaklega viðurkenndum eignarlöndum, afréttum og almenningum, m.a. í kjölfar rannsókna og athugana Fossanefndar, samanber Bjarni Jónsson frá Vogi, Almenningar og afrjettir, nefndarálit meirihluta Fossa- nefndar(B), Reykjavík 1919. 20 Kristleifur Þorsteinsson: Úr byggðum Borgarfjarðar 1, Reykjavík 1944, bls. 11. 163

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.