Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Síða 61

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Síða 61
Að öllu þessu athuguðu stendur það eftir við mat á niðurstöðu Hæstaréttar frá 3. nóvember 1994, að ekki telst sannað að hinn upprunalegi og beini eignar- réttur að Geitlandi hafi allur færst yfir til Reykholtskirkju og ræður þar öðru fremur tilgreining Reykholtsmáldaga á þessari eign kirkjunnar. Að þvr leyti má segja að rétturinn sé kominn á „fomar slóðir“ í mati sínu, því að í Hrd. 1971 1137 taldi hann einmitt að tilgreining máldaga, lögfesta og fleiri sambærilegra gagna, þessarar sömu kirkju, á landi austan Reyðarvatns, væri ekki nægilega af- dráttarlaus grundvöllur eignarréttartilkalls Lundarreykjadalshrepps, sem leiddi rétt sinn til landsvæðisins frá kirkjunni. í því tilviki lágu á hinn bóginn ekki fyrir jafn afdráttarlausar upplýsingar Landnámu um upphaflega eignatöku. Þar er líka áhugavert að bera niðurstöðu Hæstaréttar frekar saman við niðurstöðu réttarins í dómsmálunum um Landmannaafrétt. í þeim málum vildu afréttareig- endur m.a. byggja hið beina eignarréttartilkall sitt á aldalöngum samnotum sínum af landinu, en ekki lágu fyrir neinar ömggar heimildir um uppmnalega eignatöku þess. í Geitlandsmálinu er hinsvegar um öndverða stöðu mála að ræða, uppmnaleg eignataka eða nám telst sannað, en Hæstiréttur telur hinsvegar heimildum fyrir þeim eignarréttindum og varðveislu þeirra svo áfátt, að slíkur réttur til landsins síðar, telst ósannaður. Óneitanlega er sú réttarstaða, sem ráð er fyrir gert, nokkuð sérstök. Þannig er það viðurkennt að til beins eignarréttar hafi stofnast yfir landinu í önd- verðu, en einhvem tíma iyrir lok tólftu aldar, þegar Reykholtskirkja sannanlega telur Geitland fyrst til eigna sinna, sbr. máldagaákvæðin, þá hefur að mati Hæsta- réttar, hluta þessara eignarréttinda verið ráðstafað annað eða þau hreinlega „íjarað út“ með öðmm hætti. Með tilliti til eldri dóma, sbr. reifanir hér að framan, er enn- fremur full ástæða til að draga þá ályktun, að í þessu tilviki séu gerðar ríkari sönn- unarkröfur um tilvist og efni eignarheimilda en gert væri um landsvæði, sem land- fræðilega félli innan marka viðurkenndra eignarlanda. 5. NIÐURSTÖÐUR í STUTTU MÁLI Samandregið er niðurstaðan sú að dómur Hæstaréttar breyti ekki neinum grundvallarforsendum á þessu réttarsviði eða skapi það fordæmi, sem leysi almennt úr sambærilegum eignarréttarþrætum. Blandast þar auðvitað inn í, eins og fyrr sagði, eðli máls þessa og tilhögun á sönnunarbyrði. Að því marki, sem ályktanir verða þó dregnar af dómnum, virðist annarsvegar ljóst að Hæstiréttur hefur í máli þessu tekið stefnumarkandi afstöðu til heimildagildis Landnámu, sem leiðir óhjákvæmilega til þess að litið verður í ríkari mæli til þess rits við skoðun á upprunalegri eignatöku umdeildra landsvæða. Hinsvegar eru sönn- unarkröfur hertar gagnvart þeim aðilum, einstaklingum eða lögpersónum, sem halda fram beinum eignarrétti að afréttum og öðru landi, utan marka þeirra svæða, sem réttarskipanin hefur óumdeilanlega viðurkennt sem bein eignar- lönd. Hertar í þeim skilningi, að þó svo upprunalegt nám og eignataka land- svæðis sé talin ótvíræð, þá verður að sanna sérstaklega áframhaldandi tilvist og mögulega yfirfærslu þeirra beinu eignarréttinda. 165
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.