Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Page 67

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1995, Page 67
námshluta (1.-3. námsár), en nám í 4. hluta (4.-5. námsár) er valfrjálst. Skulu laganemar í 4. hluta samkvæmt hinum nýju reglum Ijúka prófi í níu kjörgrein- um og skila ritgerð að auki eða ljúka öðru sambærilegu lokaverkefni. Sam- kvæmt eldri reglum skiptist laganám í þrjá hluta, þar sem kenndar voru skyldugreinar í 1. og 2. hluta (1.-4. námsár), en námi í 3. hluta (5. námsár) var þannig háttað, að á haustmisseri luku stúdentar prófi í tveimur kjörgreinum, en skrifuðu kandídatsritgerð á haustönn. Þeir laganemar, sem stunda nám á 3. hluta laganáms háskólaárið 1994-1995 verða þeir fyrstu, sem útskrifast frá lagadeild samkvæmt hinum nýju reglum. Lagadeild setti á árinu 1994 í samræmi við ákvæði 7. mgr. 87. gr. reglugerðar nr. 98/1993 reglur um kjömám stúdenta í lagadeild í 4. námshluta, og eru reglurnar birtar í heild sinni í bæklingi, sem lagadeild gaf út og ber heitið „Val kjörgreina í fjórða hluta laganáms“. í 2. gr. þeirra reglna segir, að fyrir hver áramót skuli lagadeild ákveða a.m.k. 18 kjörgreinar til kennslu á einstökum missemm á næstu tveimur háskólaárum. Á deildarfundi 15. desember 1994 samþykkti lagadeild að bjóða upp á kennslu í 43 kjörgreinum í 4. hluta. Vali laganema á kjörgreinum fyrir háskólaárin 1995-1997 er nú lokið. Sam- kvæmt því vali verða kenndar 15 kjörgreinar á haustmisseri 1995, 11 kjör- greinar á vormisseri 1996 og 13 kjörgreinar á haustmisseri 1996. Til saman- burðar skal þess getið, að háskólaárið 1994-1995 voru kenndar 9 kjörgreinar í 3. hluta laganáms samkvæmt eldri reglugerð. Er augljóst, að hinar nýju reglur auka mjög á fjölbreytni náms við lagadeild og gera stúdentum kleift að sérhæfa sig meira en áður var. Hinar nýju reglur um skipan laganáms verða nánar kynnt- ar í Tímariti lögfræðinga. Þá verður jafnframt gerð grein fyrir þeim kjör- greinum, sem í boði eru næstu tvö háskólaárin (1995-1997) og möguleikum kandídata í lögfræði til þess að stunda nám í þeim greinum. Hinar nýju reglur um skipan laganáms kalla á auknar fjárveitingar til laga- deildar svo að deildinni verði kleift að sinna skyldum sínum við laganema sam- kvæmt reglugerðinni, en fjárveitingar til lagadeildar hafa lítið aukist á undan- förnum árum þrátt fyrir síaukinn nemendafjölda við deildina. Er nú svo komið, að lagadeild á lengst í land allra deilda við háskólann að ná því marki, að fjárveitingar til hennar séu í samræmi við erlenda viðmiðunarstaðla. Þá var sú breyting gerð á árinu 1994 á reglum um skipan laganáms, að heim- ilt er að stunda nám til doktorsprófs í lögfræði. Setti lagadeild reglur um dokt- orsnámið á deildarfundi hinn 14. nóvember 1994. 4. NORDPLUS OG ERASMUS STYRKJAKERFI - STÚDENTASKIPTI Síðastliðin tvö ár hafa nemendur lagadeildar átt þess kost að stunda nám sitt í kjörgreinunum við erlenda háskóla og hlotið til þess styrki frá NORDPLUS og ERASMUS styrkjakerfunum. Þetta fyrirkomulag hefur mælst vel fyrir, og hefur sókn nemenda í að stunda hluta námsins erlendis stöðugt farið vaxandi. Lagadeild samþykkti á fundi sínum 15. desember 1994 að stofna til sérstaks námskeiðs fyrir erlenda stúdenta við lagadeild á ERASMUMS og NORDPLUS 171

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.