Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Page 4

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Page 4
s.s. mannfæð og skort á fé. En dugir það til frambúðar. Þarf ekki að verða hér breyting á? Fyrr var á það minnst að hinir lýðræðislega kjörnu fulltrúar þjóðarinnar til að setja lög, alþingismenn, hefðu tæpast möguleika á því að fylgjast nægilega grannt með allri lagasetningu. Það er því yfirleitt þýðingarmikið að við undir- búning lagafrumvarpa hafi fulltrúar þeirra aðila sem lögin snerta mest tækifæri til að koma að samningu þeirra í því skyni að koma að sjónarmiðum sínum eða a.m.k. fá tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við þá sem lagafrumvörp semja. Það er ekki nægilegt að þeir fái tækifæri til þess þegar frumvarp er komið til meðferðar á Alþingi, þá er sjaldnast hægt að breyta nokkru sem máli skiptir. Um fátt hefur meira verið rætt og ritað á þessu hausti en gagnagrunnsfrum- varpið svonefnda. Þar sýnist sitt hverjum og vafalaust að lög á þessu sviði verða ekki svo úr garði gerð að allir verði ásáttir um ágæti þeirra. Þótt svo verði er við umræðuna sá kostur að þeir sem lagasetningunni eru mótfallnir hafa átt mögu- leika til að láta í sér heyra áður en frumvarpið verður að lögum og hafa með þeim hætti fengið tækifæri til þess að beita þeim áhrifum sem umræða getur haft. Til allrar hamingju varð ekki af þeirri fyrirætlan stjómvalda að „keyra frumvarpið í gegn um þingið“ á síðustu vordögum, svo að notað sé kunnuglegt orðalag. Hætt er við að þeir sem telja rétt að fmmvarpið verði að lögum væru þá í mun verri stöðu en þeir verða að frumvarpinu samþykktu eftir þá umræðu sem fram hefur farið. Þessi frestun á málinu hefur örugglega verið heilladrjúg °g löggjafanum til sóma. A miðju ári 1993 tóku skaðabótalögin nr. 50/1993 gildi og átti sú lagasetning sér ekki mjög langan aðdraganda. Ekki þarf hér að eyða orðurn að því um hve þýðingarmikið réttarsvið er að ræða, en hér skal enginn dómur á það lagður hvort lögin út af fyrir sig eru góð eða vond. Það má örugglega færa gild rök að því að um sé að ræða hin ágætustu lög. Staðreynd er hins vegar að einstök atriði lagafrumvarpsins og síðan laganna sættu mikilli gagnrýni þegar í stað sem leiddi til þess að á árinu 1996 vora samþykkt lög nr. 42/1996 til breytinga á skaðabótalögunum, með gildistöku 1. júlí það ár. Jafnframt var með þeim lögum ákveðið að dómsmálaráðherra skyldi skipa nefnd til að vinna að heildar- endurskoðun á skaðabótalögunum og leggja fram fumvarp til breytinga á lögunum eigi síðar en í október 1997. Sá frestur var framlengdur um eitt ár með lögum nr. 149/1997. Með breytingalögunum nr. 42/1996 var margföldunartala árslauna tjónþola hækkuð úr 7,5 í 10 sem þýddi almennt að sá sem varð fyrir slysi sem leiddi til örorku 1. júlí 1996 mátti eiga að öðru jöfnu von á þriðjungi hærri bótum en sá sem varð fyrir sams konar slysi og örorku 30. júní sama ár. Eðlilega var látið á það reyna fyrir dómstólum, m.a. með tilliti til þeirra breytinga sem gerðar höfðu verið á skaðabótalögunum, hvort tjónþoli hefði fengið fullar bætur í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar. Dómstólar töldu svo vera. 172

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.