Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Page 35

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Page 35
við ákvæði 10. greinar skaðabótalaga um örorkunefnd og alls ekki við fram- kvæmdina. Einfaldast er að fella brott 10. grein skaðabótalaga. Þá kæmu aðilar sér saman um matsmann eða matsmenn eins og algengast var fyrir gildistöku skaðabótalaga. Standi 10. grein áfram er óhjákvæmilegt að breyta henni. Til mikilla bóta væri að það kæmi skýrt fram hvert starfssvið nefndarinnar er. Það er ekki ljóst samkvæmt núgildandi lögum. Því þarf að koma fram í lagatextanum sjálfum að nefndin sé málskotsaðili en ekki einhvers konar örorkuríkismat, stofnun sem ætlað er að meta örorku allra sem slasast. 1. mgr. 10. greinar gæti þá hljóðað svo: „Tjónþoli eða sá sem ábyrgð ber á tjóni getur óskað álits örorkunefndar um fyrirliggjandi mat á miska og varanlegri örorku eða frummats ef aðilar eru sam- mála um það”. Að mínu áliti myndi þetta leiða til þess að lögmenn og vátryggingafélög næðu samkomulagi um matsmann, í versta falli matsmenn. Einungis ágrein- ingsmálum væri þá vísað til nefndarinnar. Þetta myndi leiða til þess að nefndin gæti betur vandað álitsgerðir sínar og lokið þeim á stuttum tíma frá því beiðnir berast. Breyta þarf 2. mgr. 10. gr. þannig að nefndarmenn verði skipaðir samkvæmt tilnefningu. Formaður og varaformaður t.d. samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar og læknamir samkvæmt tilnefningu Læknafélags íslands eða Læknaráðs. Breyting í þessa átt myndi koma í veg fyrir óhöpp af því tagi sem áttu sér stað með skipan lækna í þá nefnd sem nú starfar og lýst er að framan. Standi þetta ákvæði óbreytt er ekkert því til fyrirstöðu að dómsmálaráðherra skipi næst í nefndina núverandi trúnaðarlækna VIS hf. og Sjóvár-Almennra trygginga hf. í stað hinna fyrrverandi trúnaðarlækna. „Það væri allt í lagi skv. áliti ráðuneytis- ins, ef læknarnir hefðu sagt sig frá öllum verkefnum sem þeir hafa verið til- nefndir til af hálfu tryggingarfélaga“, eins og segir í niðurlagi bréfs ráðuneytis- ins til okkar fimmmenninganna dags. 7. september 1993. Þá má hugsa sér að skipa ekki fasta lækna til setu í örorkunefnd heldur sé leitað til sérfræðinga úti í bæ um læknisfræðilega skoðun og mat, til lækna T.R. eða jafnvel að málsaðilar skipi hvor sinn lækninn til meðferðar einstakra mála. Danska stofnunin, Arbejdsskadestyrelsen, hefur þannig ráðgjafa sem spanna 9 svið læknisfræðinnar allt frá bæklunarlæknum til geðlækna og er leitað til þeirra eftir því hver meiðsli hins slasaða eru. Þeir koma frá sjúkra- húsum, ráðgjafarstarfið er aukastarf og þeir mega ekki vera tengdir vátrygg- ingafélögum. Þá má fella brott 3. mgr. 10. gr. Töflur um örorku fólks eru til, bæði hérlendis og erlendis, eins og fram kemur í fyrmefndri umsögn Læknafélags Islands til allsherjarnefndar Alþingis, engin þörf er á sérstakri töflu fyrir möt örorkunefnd- ar og ákaflega vandséð hvert gildi hún hefur umfram aðrar töflur. Þurfa aðrir læknar að fylgja henni við mat sitt? Það getur varla verið því þá er búið að gera örorkunefnd að einhvers konar 203

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.