Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Blaðsíða 74
draga of víðtækar ályktanir af dóminum um lögmæti skylduaðildar að félaginu
og starfsemi þess samkvæmt 2. mgr. 74. gr. stjskr. Dómurinn einskorðast við
réttarstöðu félagsins gagnvart félagsmanninum sem vill ekki taka þátt í kostnaði
af annarri starfsemi en leiðir af lögboðnu hlutverki en gerir ekki sérstakan
ágreining um það að félagið sinni slíkri starfsemi. Það reyndi ekki á það í
málinu hvort lögmannafélaginu væri heimilt sem skylduaðildarfélagi að sinna
annarri starfsemi en leiðir af lögmæltu hlutverki eða hvort sú krafa verði gerð
samkvæmt 2. mgr. 74. gr. stjskr. að starfsemi skylduaðildarfélaga sé ekki víð-
tækari en nemur lögmæltu hlutverki. Því er enn ósvarað hvort það sjálfdæmi
sem lög nr. 61/1942 veittu lögmannafélaginu um ákvörðun tilgangs og starf-
semi sé í samræmi við 2. mgr. 74. gr. stjskr. Það verður að hins vegar að teljast
vafasamt að skylduaðildarfélag megi reka hvers konar starfsemi ef þess er
aðeins gætt að einungis þeir félagsmenn sem það vilja taki þátt í kostnaði af
starfi hennar. Slík starfsemi mætti a.m.k. ekki brjóta gegn stjórnarskrárvörðum
réttindum manna svo sem skoðana- og tjáningarfrelsi.
5. LÖGMANNAFÉLAGIÐ SAMKVÆMT LÖGUM NR. 77/1998
Ný lög um lögmenn nr. 77/1998 taka gildi 1. janúar nk. og falla þá úr gildi
lög um málflytjendur nr. 61/1942. Lögin fela í sér umtalsverðar breytingar á
stöðu lögmannafélagsins en lögmönnum er eftir sem áður gert skylt að eiga
aðild að félaginu. Auk þess að vera liður í heildarendurskoðun löggjafar um
réttarfarsleg málefni, eins og bent er á í greinargerð með frumvarpi að lögunum,
var setning stjórnarskrárákvæðis um neikvætt félagafrelsi, sbr. 2. mgr. 74. gr.
stjskr., eitt af því sem ýtti undir heildarendurskoðun laga um málflytjendur.30
5.1 Það átti að afnema skylduaðild
I frumvarpi dómsmálaráðherra var gert ráð fyrir að skylduaðild að lög-
mannafélaginu yrði aflögð og að eftirlit með störfum lögmanna yrði að öllu
leyti fært frá félaginu til stjómvalda. Eftir sem áður skyldi lögmannafélagið
vera í forsvari fyrir lögmannastéttina, setja lögmönnum siðareglur sem skyldu
staðfestar af dómsmálaráðherra og stuðla að því að menn gætu notið aðstoðar
lögmanna. I greinargerðinni er bent á að í ljósi Mannréttindasáttmála Evrópu og
breytinga á stjómarskránni sé eðlilegt að stíga skrefið til fulls og afnema
félagsskylduna og eftirlit félags lögmanna með störfum lögmanna. Einnig er
vísað til breyttra viðhorfa hér og erlendis um það að skylda menn til aðildar að
félagi sem m.a. hafi lýst sér í íslenska leigubílstjóramálinu. Sú aðstaða sé nú
uppi að skilyrði 2. mgr. 74. gr. stjskr. um nauðsyn skylduaðildar vegna al-
mannahagsmuna þurfi að vera fyrir hendi. A það er bent að vegna agavalds
lögmannafélagsins samkvæmt lögum nr. 61/1942 ætti 2. mgr. 74. gr. stjskr. ekki
30 Frumvarp til laga um lögmenn, 122. löggjafarþing 1997-98, þskj. 57, bls. 9.
242