Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Blaðsíða 39
Helgi I. Jónsson er
héraðsdómari í Reykjavík
Helgi I. Jónsson:
SAMFÉLAGSÞJÓNUSTA - VIÐURLÖG
EÐA FULLNUSTUÚRRÆÐI
EFNISYFIRLIT
1. INNGANGUR
2. LÖGFESTING SAMFÉLAGSÞJÓNUSTU SEM
FULLNUSTUÚRRÆÐIS MEÐ LÖGUM NR. 123/1997
3. HUGTAKIÐ SAMFÉLAGSÞJÓNUSTA
4. MÁLSMEÐFERÐ
5. ROF Á SKILYRÐUM SAMFÉLAGSÞJÓNUSTU
6. NIÐURLAG
1. INNGANGUR
Með lögum nr. 55/1994 um samfélagsþjónustu, sem öðluðust gildi 1. júlí
1995, var heimilað, eftir umsókn dómþola, að fullnusta allt að þriggja mánaða
refsivistardóm, þannig að í stað refsivistarinnar kæmi ólaunuð samfélagsþjón-
usta, minnst 40 klukkustundir og mest 120 klukkustundir. Jafngilti því eins
mánaðar óskilorðsbundin refsivist einni vinnuviku í samfélagsþjónustu. Skil-
j'rði til beitingar þessa úrræðis var, að almannahagsmunir mæltu ekki gegn því.
Ákvörðun um, hvort þessu úrræði yrði beitt, skyldi vera á hendi þriggja manna
nefndar, samfélagsþjónustunefndar, sem dómsmálaráðherra skipaði. Fram kom
í frumvarpi til laganna, að úrræði þetta væri tekið upp í tilraunaskyni. Var lög-
unum markaður ákveðinn gildistími, eða til 31. desember 1997.
I athugasemdum með frumvarpinu kemur fram, að rökin fyrir þessari til-
högun séu þau, að með því að ákvörðun um samfélagsþjónustu sé fullnustu-
207