Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Qupperneq 9

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Qupperneq 9
Við eftirgrennslan kom í ljós að hinn 1. nóvember höfðu félögin kynnt starfs- mönnum sínum verklagsreglur, útgefnar af Sambandi íslenskra tryggingafé- laga, reglur sem gengu þvert á gildandi íslenskan rétt. Reglur þessar leiddu til mikilla málaferla á hendur félögunum og lauk nær öllum þessum málum á þann hátt sem sjá mátti fyrir. Dómstólar, oft á endanum Hæstiréttur, dæmdu skaðabætur samkvæmt gild- andi rétti en ekki samkvæmt verklagsreglunum. Félögin náðu þó nokkrum árangri með þessu samráði sínu: 1. Einhver hópur slasaðra, hugsanlega nokkur hundruð manns, gerði upp á grundvelli verklagsreglnanna, því miður flestir með aðstoð lögmanna. 2. I fyrstu dómsmálunum gerðu lögmenn almennt ekki athugasemdir við upp- ástungu lögmanna vátryggingafélaganna um matsmenn. Þegar þær mats- gerðir voru lagðar fram í málunum kom í ljós að í þeim var örorka hins slas- aða nær undantekningarlaust metin lægri en í frummatinu. Matsmenn, og þá fyrst og fremst læknarnir, virtust hafa aðrar hugmyndir um afleiðingar til- tekinna áverka á líkama fólks en almennt höfðu gilt hjá þeim læknum sem áður höfðu metið örorku fólks. Þegar þetta varð ljóst höfnuðu margir lögmenn, þ.á m. greinarhöfundur, þess- um tilnefningum félaganna. Komu þá aðrir læknar að málunum og meira sam- ræmi varð milli mats dómkvadds matsmanns og frummatsins. Þessi málaferli, matskostnaður, málskostnaður lögmanna beggja aðila, drátt- arvextir á skaðabæturnar og fleira kostuðu félögin óhemju fjármuni, einkum stóru félögin tvö, Vátryggingafélag Islands hf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., en hin félögin beittu verklagsreglunum af meiri skynsemi og sættu flest ef ekki öll málin. Verklagsreglurnar voru tilraun Sambands íslenskra vátryggingafélaga til að beita afli í viðskiptum við dreifðan, ósamstæðan og oft illa staddan hóp ein- staklinga sem höfðu orðið fyrir líkamstjóni. Enginn opinber aðili, stéttarfélög, neytendasamtök eða kjörnir fulltrúar al- mennings lyfti litlafingri til að veita hinum slösuðu liðsinni og hindra þetta samráð um ólögmætar aðgerðir. Lögmenn og dómstóla þurfti til. 5. FYRRA FRUMVARPIÐ 5.1 Gerð frumvarpsins Dómsmálaráðherra brást fljótt við fyrrnefndri málaleitan Sambands íslenskra tryggingafélaga um frumvarp til skaðabótalaga því að í ársbyrjun 1992 var frumvarpið lagt fram á Alþingi á 115. löggjafarþingi 1991-1992. í athugasemdum með frumvarpinu á bls. 7 kemur fram að það sé samið að tilhlutan dómsmálaráðherra. Þar segir einnig að Arnljótur Björnsson, þá pró- 177
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.