Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Síða 45

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Síða 45
óskilorðsbundna refsivist allt að sex mánuðum, eru í miklum meirihluta allra þeirra dóma, þar sem slík viðurlög eru dæmd. Hér er því um afar mikið og vandmeðfarið vald að ræða. Ennfremur verður að líta til þeirrar staðreyndar, að samkvæmt umræddum lagaákvæðum er fangelsisyfirvöldum falið mat á ýms- um atriðum, þegar tekin er afstaða til, hvort við beiðni um samfélagsþjónustu er orðið, án þess að um opna og vandaða málsmeðferð sé að ræða. Dómstólar standa iðulega frammi fyrir þeirri erfiðu ákvörðun að meta, hvort dæmd verði óskilorðsbundin refsivist eða skilorðsbundin. Verður því að telja það afar sérkennilegt, að dómstólar eigi þess ekki kost að dæma sakboming í samfélagsþjónustu, í stað óskilorðsbundinnar refsivistar, telji þeir fyrrnefnda kostinn frekar við hæfi, á sama tíma og framkvæmdavaldinu er falið endanlegt ákvörðunarvald um að breyta refsiákvörðun dómstóla og ákveða önnur og væg- ari viðurlög en dómstólarnir hafa kveðið á um. Um valdmörk stjórnvalda skal hér getið dóms Hæstaréttar íslands frá 29. mars 1994, sem er að finna í dómasafni réttarins frá því ári á bls. 748. I stuttu máli voru málsatvik þau, að yfirfangavörður hafði úrskurðað, að fangi skyldi sitja í einangrun í 10 daga vegna agabrots (vegna neyslu vímuefnis innan fangelsis). Var þeim tíma bætt við refsivistina. Byggðist það á 3. mgr. 26. gr. laga nr. 48/1988 um fangelsi og fangavist, þar sem sagði meðal annars: „Sá tími, sem fangi er hafður í einangrun, telst ekki til refsitímans“. í umræddri lagagrein voru ennfremur ákvæði um, að fyrir brot á reglum fangelsis mætti beita agaviðurlögum, þ.á m. einangrun, og skyldi forstöðumaður ákveða þau. í dómi Hæstaréttar segir meðal annars svo: Samkvæmt 2. gr. stjómarskrárinnar fara dómendur með dómsvaldið. í því hlutverki felst meðal annars að ákvarða mönnum refsivist vegna ólögmætrar hegðunar, og eru ekki aðrir handhafar ríkisvalds bærir til þess. Er það grundvallarregla íslensks réttar, sem meðal annars á sér stoð í 65. gr. stjórnarskrárinnar, að enginn verður sviptur frelsi sínu nema úrskurður dómara komi til. Jafnframt verður málsmeðferðin, sem leiðir til þess úrskurðar, að uppfylla ákveðin skilyrði, sem nú koma aðallega fram í lögum nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, en á þeim tíma er getur í málinu í lögum nr. 74/1974 um sama efni. Akvæði 26. gr. laga nr. 48/1988, er lengdi refsivist og fékk forstöðumönnum fangelsa ákvörðunarvald þar um, var því í andstöðu við framangreind ákvæði stjórnarskrár. Eigi skal því slegið alveg föstu í greinarkorni þessu, að áðurnefnd löggjöf stangist á við 2. gr. stjómarskrárinnar eða 2. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, en samkvæmt 60. gr. stjórnarskrárinnar eiga dóm- stólar úrskurðarvald um embættistakmörk yfirvalda og þar á meðal, hvort lög era að efni til andstæð ákvæðum stjómarskrár. Á hinn bóginn tel ég augljóst, að slíkt fyrirkomulag er með öllu óeðlilegt og samrýmist ekki nútímaviðhorfum í réttarfari og stjórnskipunarrétti. Til þess að taka upp fyrirkomulag, er gengur þvert á það, sem tíðkast í þeim Evrópulöndum, þar sem samfélagsþjónusta hefur verið lögleidd sem ein tegund 213
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.