Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 43

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 43
anir sínar fyrir dómi. Ákvæðið lagði hins vegar fortakslaust bann við fyrir fram tálmunum við prentfrelsinu og nefndi sérstaklega ritskoðun í því sambandi í ljósi reynslunnar frá einveldistíma. Prentfrelsisákvæði 54. gr. stjskr. sótti fyrir- mynd sína til þágildandi 86. gr. dönsku grundvallarlaganna frá 1866 sem reynd- ar kvað á um að ritskoðun mætti aldrei innleiða á ný. Lágu ríkar ástæður að baki því að afdráttarlaust bann var þar lagt við ritskoðun þar sem virk ritskoðun, þ.e. fyrir fram yfirlestur alls prentaðs máls, hafði farið fram af hálfu einveldisstjórn- ar í Danmörku allt fram til loka einveldistíma. Það má því segja að í ljósi sögu- legra forsendna sem lágu að baki prentfrelsisákvæðinu í dönsku grundvallarlög- unum hafi eitt helsta markmið þess verið að vernda hið formlega prentfrelsi og afnema fyrir fram settar hömlur við útgáfu prentaðs máls en vernd hins efnis- lega prentfrelsis hafi ekki verið sérstakt markmið.6 Þótt reglur væru settar hér á landi á einveldistíma með danskri tilskipun frá 1799, sem mælti fyrir um að ritskoðun skyldi fara fram og vera í höndum lög- reglustjómarinnar, virðast þær og síðari reglur um framkvæmd ritskoðunar aldrei hafa komist í framkvæmd.7 Því má segja að þau sögulegu rök og mark- mið sem stefnt var að með prentfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar, að afnema rit- skoðun og banna til framtíðar, hafi ekki átt alls kostar við hér á landi. 2.2 Gildissvið prentfrelsisákvæðisins og heimildir til eftirfarandi takmarkana á tjáningarfrelsi í ljósi hins sögulega uppruna og afdráttarlauss orðalags prentfrelsisákvæðis- ins var almennt litið svo á fram á síðari hluta síðustu aldar að vemd þess væri bundin við þann eina tjáningarhátt sem getið var í ákvæðinu. Þessi skoðun Olafs Jóhannessonar kom skýrt fram í riti hans Stjómskipun Islands sem kom út árið 1960: 72. gr. tekur eigi til tjáningatfrelsis almennt. Hún á aðeins við um einn tiltekinn tjáningarhátt. Ákvæði 72. gr. tryggja mönnum aðeins rétt til að láta í ljós hugsanir sínar á prenti eða með öðrum hætti sem jafnað verður til prentunar, sbr. 1. 57/1956. 72. gr. myndi því t.d. taka til fjölritunar og ljósprentunar. Á hinn bóginn á 72. gr. ekki við um aðra birtingarháttu, svo sem kvikmyndasýningar, sbr. um skoðun á þeim, 2. mgr. 41. gr. 1 29/1947, leiksýningar og aðrar opinberar sýningar, svo sem ljósmynda, málverka- og höggmyndasýningar, sbr. um athugun á þeim, 1. mgr. 41. gr. 1. 29/1947 og útvarpssendingar, sbr. 1. 68/1934, þar sem rfldsstjóminni er veittur einkaréttur til að reka útvarp hér á landi. Og í 5. gr. síðast nefndra laga er útvarpsráði sérstaklega falið ákvörðunarvald um það, hvað látið er koma fram í dagskrá. 72. gr. stjskr. tekur eigi heldur til fyrirlestra eða annarra rœðuhalda. Skýringin á því, að 72. gr. er ein- skorðuð við birtingu á prenti, er fyrst og fremst sú, að sá birtingarháttur var tíðastur og skipti langmestu máli á þeim tíma er stjómarskrárákvæðið varð upphaflega til. 6 Alf Ross og Ernst Andersen: Dansk statsforfatningsret II, bls. 193. Sbr. einnig Henrik Zahle: Dansk Statsforfatningsret 3, bls. 61. 7 Olafur Jóhannesson: Stjómskipun íslands, bls. 470. 377
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.