Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 48

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 48
Svo víðtækt lögbann gegn hinu talaða orði fær ekki staðist. Það er brot gegn 72. gr. stjórnarskrár lýðveldisins íslands nr. 33 17. júní 1944 er fjallar berum orðum um rétt manna til að láta í ljós hugsanir sínar á prenti og einnig verndar hið talaða orð. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms án þess að víkja að álitaefnum um vernd talaðs orðs en taldi ekki fullnægjandi rök til þess að þeir hlutar sjón- varpsþáttarins sem deilt var um brytu í bága við reglur urn æruvernd og frið- helgi einkalífs eða grundvallarreglur um persónuvemd. í H 1979 588 var deilt um lögbann við útsendingu útvarpsþáttar. í héraðs- dóminum í máli þessu var einnig vísað til þess að í 72. gr. stjskr. fælist grunn- regla íslensks réttar um tjáningarfrelsi. í Hæstarétti voru ekki frekar en áður höfð nein orð um stjómarskrárvernd hins talaða orðs. Líkt og í fyrra málinu var álitaefnið eingöngu skoðað út frá því hvort andstæðir hagsmunir sem vógust á við tjáningarfrelsið í þessu tilviki, þ.e. æruvernd, réttlætti takmarkanir með vís- an til meginreglna laga um persónuvernd.17 Sá munur er á þessum málum og þeim tveimur fyrri, sem fjölluðu um tak- markanir við útsendingum á sjónvarps- og útvarpsefni, að í þeim síðamefndu voru til skoðunar takmarkanir tjáningarfrelsis í þágu æruverndar. Á því sviði höfðu dómstólar þegar fastari grunn að byggja á, ákvæði almennu hegningar- laganna sem áður eru nefnd, svo og langa hefð fyrir beitingu þeirra í dómafram- kvæmdinni. Svo virðist sem dómstólar hafi smám saman byrjað að meta tak- markanir á prentfrelsinu í ærumeiðingarmálum, ekki aðeins út frá refsiskilyrð- um almennu hegningarlaganna heldur einnig í víðara samhengi út frá stjórnar- skrárvernd tjáningarfrelsisins. Sést það glöggt í dómum í meiðyrðamálum sem spruttu af undirskriftasöfnuninni Varið land sem efnt var til á árinu 1974. Var þar skorað á ríkisstjórnina að treysta samstarfið innan Atlantshafsbandalagsins og falla frá áformum um uppsögn varnarsamningsins við Bandaríkin og brott- vísun hersins. Undirskriftasöfnunin leiddi til harðrar þjóðfélagsumræðu og blaðaskrifa þar sem hvassri gagnrýni var beint að forsvarsmönnum söfnunar- innar. I nokkrum héraðsdómum í meiðyrðamálum sem höfðuð voru af þessu til- efni má sjá öllu ítarlegri rökstuðning en áður þekktist varðandi mörk tjáning- arfrelsis, markmið sem réttlættu slíkar takmarkanir og mikilvægi frjálsrar stjórnmálaumræðu í lýðræðisþjóðfélagi. Má t.d. benda á héraðsdóm í H 1977 375 þar sem eru eftirfarandi ummæli: I öllum meiðyrðamálum er það viðfangsefnið, hversu langt menn mega ganga í tjáningu sinni, án þess að þeir verði beittir þeim viðurlögum, sem hegningarlög mæla fyrir um. Við þetta mat verður að gæta ýmissa sjónarmiða, svo sem að opinberri um- rœðu séu ekki settar óþarfa skorður, upplýsingaskyldu og gagnrýnisskyldu fjölmiðla séu ekki sett ofþröng mörk, eðli umrœðunnar og hverjar tjáningarvenjur gilda um 17 Hafa ber í huga að á þessum tíma kvað stjómarskráin ekki afdráttarlaust á um vemd friðhelgi einkalífs, sbr. núgildandi 71. gr. stjskr. eftir breytingar með stjskl. nr. 97/1995. Þágildandi 66. gr. var samkvæmt orðalagi sínu bundin við friðhelgi heimilisins. 382
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.