Ægir - 01.04.1996, Page 27
verið settir gúmmíbjörgunarbátar með
brúðum í á rek og sjóbjörgunarsveitir
kallaðar út eftir ákveðinn tíma til leitar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, var
einnig með í síðustu æfingu, en þá voru
æfð viöbrögð við flugslysi við Keflavík-
urflugvöll. Flaggskip Slysavarnafélags-
ins, Hannes Þ. Hafstein, var þá kallað á
vettvang og æfðar hífingar í þyrluna
ásamt brunaæfingu.
í hörmungunum á Vestfjörðum á síð-
asta ári, þegar snjóflóð féllu í Súðavík og
á Flateyri, sá björgunarmiðstöðin um að
kalla út björgunarsveitir samkvæmt
beiðnum Landsstjómar björgunarsveita
og svæðisstjórna. Einnig tók björgun-
armiöstöðin drjúgan þátt í aðgerðum í
samvinnu við Almannavarnir ríkisins
og Landsstjórn björgunarsveita og voru
upplýsingar Tilkynningaskyldunnar um
staðsetningu skipa úti fyrir Vestfjörðum
dýrmætar. Gekk því greiðlega að hafa
samband við skip, aðallega togara, og
brugðust sjómenn strax fljótt og vel við
kallinu og unnu þeir gott verk við að
flytja björgunarmenn á skaðasvæðin og
einnig við snjómokstur.
Tilkynningaskyldan
Þann 30. maí 1968 fól Eggert G. Þor-
steinsson, þáverandi sjávarútvegsráð-
herra, Slysavarnafélagi íslands fram-
kvæmd Tilkynningaskyldunnar sem fé-
lagið hefur rekið síðan.
Fjarskiptasamband milli skipa og
strandastöðva Landsíma Islands er einn
mikilvægasti öryggisþáttur í starfi sjó-
mannsins. Tvö sjóslys, þar sem skortur
á slíku sambandi blasti við, stuðlaði
mjög að því að tilkynningaskyldu var
komið á. Hiö fyrra var þegar m/s
Stuðlaberg frá Seyðisfirði fórst með allri
áhöfn, 11 mönnum, út af Stafnesi 1962,
en skipsins var ekki saknað fyrr en að
nokkrum dögum liðnum. Hiö síðara
var þegar m/s Stígandi frá Ólafsfirði
fórst á síldarmiðunum við Jan Mayen
1967 en áhöfninni, 12 mönnum, var
bjargað eftir tæpa 5 sólarhringa dvöl í
gúmmíbátum og var ekkert vitað um af-
drif skipsins fyrr en þá.
Á árinu 1968 ræddu fulltrúar Slysa-
varnafélagsins við sjómenn um fram-
kvæmd og fyrirkomulag Skyldunnar í
verstöðvum víðs vegar um land og kom
þá fram að sjómenn voru almennt fylgj-
andi þessari nýbreytni og tilbúnir að
leggja á sig nokkra fyrirhöfn til að þessi
viðleitni til öryggis mætti verða að vem-
leika. Samvinna við sjómenn varð strax
í upphafi góð og þátttakan brátt almenn.
Ásgrímur Björnsson þáverandi erindreki
félagsins fór í fjölmargar verstöðvar til að
tala við sem allra flesta skipstjórnar-
menn um gildi Tilkynningaskyldunnar
fyrir þá og vandamenn þeirra og brýna
rækilega fyrir þeim, hversu mikilvæg
þessi samhjálp sé og nauðsynlegt að sjó-
menn standi saman um að gera árangur
hennar sem mestan.
Þorvaldur Ingibergsson kennari við
Stýrimannaskólann í Reykjavík var í upp-
hafi ráðinn til að hafa á hendi daglega
framkvæmd Tilkynningaskyldunnar.
í lögum um Tilkynningaskylduna er
kveðið á um að öllum íslenskum skipum
sem skylt er að vera meö talstöð beri að
hlíta tilkynningaskyldu, að skipum
Landhelgisgæslunnar undanskyldum.
Með tilkomu sjálfvirku tilkynninga-
skyldunnar mun allt öryggi sjómanna
aukast gífurlega. Núna er gert ráð fyrir
að tilraunakeyrsla hefjist á næsta ári og
áriö 1999 verði öll skip og bátar komin
inn í sjálfvirka tilkynningakerfið.
Með tilkomu nýrrar útkallstölvu
björgunarsveita, sem staðsett er hjá Til-
kynningaskyldunni, er hægt að kalla út
eina eða margar björgunarsveitir með
einni aðgerð. Útkallstölvan flýtir geysi-
Iega mikið fyrir útköllum og gerir þau
öruggari og markvissari. Auk þess hef-
ur Slysavarnafélagið leigt talhólf af
Pósti & síma. Kerfið er að grunni byggt
á forritinu Arcview, sem er landupplýs-
ingakerfi, en það gerir notendum kleift
að nálgast upplýsingar sem geymdar
eru í töflum með því að benda á stað í
korti. Nú þegar eru til umtalsverö staf-
ræn gögn sem nýtast kerfinu, eins og
t.d. kortgrunnar frá Landmælingum
íslands, m.a. í mælikvörðum
1:2.000.000, 1:500.000, 1:250.000,
1:100.000 og 1:50.000. Einnig eru til
kortgrunnar sem sýna skiptingu sveit-
arfélaga og hreppa sem nýtast vel til
upplýsinga.
Nýr útkallskódi var tekin í notkun 1.
desember og gildir hann fyrir allar
björgunarsveitir á landinu og til að fá
nánari upplýsingar um útkallið geta 32
aðilar hringt í talhólfið samtímis án
þess að sé á tali. Starfsmenn Tilkynn-
ingaskyldunnar lesa inn á talhólfið nán-
ari upplýsingar og hafa veriö þjálfaðir
sérstaklega til þess. □
ÆGIR 27