Ægir - 01.04.1996, Page 38
skiptiskrúfubúnaði frá Lips. í skipinu er búnaður fyrir svartol-
íubrennslu, seigja IF 380.
Tæknilegar upplýsingar [aðalvál með skrúfubúnaði):
Gerð vélar 6R32BC
Afköst 2005 KW (2725 hö)
Snúningshraði 720 sn/mín
Gerð niðurfærslugírs ERMD 2500
Niðurgírun 3,29:1
Blaðfjöldi skrúfu 4
Þvermál skrúfu 2600 mm
Snúningshraði 219sn/mín
Skrúfuhringur Fastur
Á niðurfærslugír eru tvö úttök fyrir riðstraumsrafala, sem
eru frá Leroy Somer, gerð TA 4010 L6, 512 KW (640 KVA), 3 x
380 V, 50 Hz hvor.
í skipinu er ein Baudouin hjálparvél af gerð 6P15SRE, sex
strokka fjórgengisvél með forþjöppu, 220 KW (300 hö) við
1500 sn/mín. Vélin knýr 184 KW (230 KVA), 3 x 380 V, 50
Hz riðstraumsrafal frá Leroy Somer af gerö TA 2810 L7.
í skipinu er afgasketill frá Wanson, hitaflötur 52 m2, þrýst-
ingur 10 bar, en einnig er olíukyntur ketill frá Wanson, gerð
400 BIS.
Annar vélbúnaður, skipskerfi: Stýrisvél er rafstýrð og vökva-
knúin frá Sperry, snúningsvægi 10 tm., og tengist hefð-
bundnu stýri.
Fyrir brennsluolíu- og smurolíukerfið eru þrjár Alfa Laval
skilvindur af gerð WHPX405TG, tvær fyrir brennsluolíukerf-
ið (gasolíu og svartolíu) og ein fyrir smurolíukerfið. Ræstiloft-
þjöppur eru þrjár, tvær frá Ervor af gerð G 40-ELD, afköst 32,5
m3/klst við 30 bar þrýsting hvor, og ein frá Atlas Copco af
gerð LT 930, afköst 33,2 m3/klst við 30 bar þrýsting. Fyrir
vélarúm og loftnotkun vélaem tveir rafdrifnir blásarar, afköst
27000 m3/klst hvor.
Rafkerfi skipsins er 380 V, 50 Hz riðstraumur fyrir mótora
og stærri notendur og 220 V, 50 Hz til ljósa og almennra nota
í íbúðum. Fyrir 220 V kerfiö eru tveir spennar 380/220 V.
í skipinu er ferskvatnsframleiðslutæki frá Alfa Laval af gerð
JWP 26-C50, afköst 5 tonn á sólarhring. Austurskiljan er frá
Serep, afköst 0.5 m3/klst. Fyrir vélarúm er Halon 1301 slök-
kvikerfi.
íbúðir eru hitaðar upp með miðstöðvarofnum, sem fá
varma frá afgaskatli og olíukyntum katli til vara. Loftræsting
íbúða er með rafdrifnum blásurum, auk blásara fyrir innblást-
ur, afköst 4200 m3/klst, eru sogblásarar fyrir eldhús, snyrti-
klefa o.fl.
Vinnsluþilfar er loftræst með 12000 m3/klst blásara. Fyrir
hreinlætiskerfi er ferskvatnsþrýstikerfi og sjókerfi fyrir salerni.
Fyrir vökvaknúinn vindubúnaö er vökvaþrýstikerfi (lág-
þrýstikerfi) frá Sorenam (Norwinch). Um er að ræða fjórar raf-
drifnar vökvaþrýstidælur af gerö SV15A, sem skila 1195 1/mín
hver við 1450 sn/mín og 50 bar þrýsting, knúnar af 110 KW
rafmótorum. Fyrir lúgubúnað, smávindur og vinnuþilfar er raf-
drifið vökvaþrýstikerfi frá Landvélum hf., tvær Rexroth dælur,
100 1/mín við 210 bar þrýsting hvor, knúnar af 37 KW rafmót-
orum. Stýrisvél er búin tveimur rafdrifnum vökvadælum.
Fyrir frystitæki og frystilest er kælikerfi (frystikerfi), stað-
sett í rými s.b.-megin í vélarúmi. Kæliþjöppur eru þrjár frá
Grasso, tvær af gerðinni RC 4211, knúnar af 90 KW rafmótor-
um, kæliafköst 113500 kcal/klst (132 KW) við -35°C/-/+40°C
hvor þjappa, og ein minni, knúin af 30 KW rafmótor, kæliaf-
köst 30400 kcal/klst (35.3 KW) við -35°C/-/+40°C. Kælimiðill
er Freon 22. Fyrir matvælageymslur (kæli og frysti) er sjálf-
stætt kælikerfi, kælimiðill Freon 22.
íbúðir
Almennt: íbúðir eru samtals fyrir 27 menn í þremur 4ra
manna (nýttir fyrir þrjá), fimm 2ja manna og fimm eins
manns klefurn, auk sjúkraklefa. íbúðir eru á þremur hæðum
framskips, þ.e. á efra þilfari, bakkaþilfari og brúarþilfari.
Efra þilfar: í íbúðarrými fremst á efra þilfari er hlífðarfata-
geymsla (sloppageymsla fyrir vinnuþilfar) s.b.-megin, en b.b.-
megin eru matvælageymslur (þurrgeymsla, kælir og frystir).
Þar fyrir aftan eru tveir eins manns klefar (annar með sér-
snyrtingu) b.b.-megin, en s.b.-megin og fyrir miðju eru tveir
borðsalir, snyrting með salerni og sturtu og stakkageymsla
(fyrir togþilfar) út við s.b.-síðu. Eldhús er aftast fyrir miðju.
Bakkaþilfar: Fremst í íbúðarými á bakkaþilfari er snyrtiher-
bergi með þremur salernisklefum og þremur sturtuklefum
s.b.-megin, til hliðar við snyrting með salemi og sturtu, stiga-
gangur milli hæða og þvottaherbergi, en b.b.-megin er sjúkra-
klefi meö sérsnyrtingu. Fyrir miöju, aftan við þvergang, eru
tveir tveggja manna klefar og stigagangur upp í brú. í rým-
um meðfram síðum eru svefnklefar, s.b.-megin þrír 4ra
manna klefar, en b.b.-megin eins manns klefi og þrír tveggja
manna klefar.
Bníarþilfar: Á brúarþilfari, s.b.-megin aftan við stýrishúsið,
er skipstjóraklefi með sérsnyrtingu og b.b.-megin er eins
manns klefi, auk salernisklefa.
íbúðir eru einangraðar og klæddar meö plasthúðuðum
spónaplötum.
Vinnuþilfar (fiskvinnslurými)
Móttaka afla: Framan við skutrennu er vökvaknúin
fiskilúga sem veitir aðgang að fjórskiptri fiskmóttöku, um
60m3 að stærö, aftast á vinnuþilfari. í efri brún skutrennu er
vökvaknúinn skutrennuloki. Móttakan er klædd ryöfríu stáli
og búin kælingu, lokuð að framan með þili og búin fjómm
lúgum til losunar.
Meðhöndlun afla: í skipinu er búnaður til bolfiskflaka-
vinnslu og heilfrystingar á karfa og grálúðu. Vinnslubúnaður
svo sem færibönd, blóögunar-, þvotta- og safnkör, snyrti- og
pökkunarborð eru frá Þ&E hf., sem einnig annaðist niður-
38 ÆGIR