Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.1998, Side 10

Ægir - 01.11.1998, Side 10
Túnfískveiðiskipið Byr VE komið á veiðar: Markmiðið að vera á túnfisk- veiðum árið um kring - segir Sveinn Rúnar Valgeirsson, skipstjóri Saga túnfiskveiða íslendinga er hafin. Á dögunum hélt til veiða túnfiskveiðiskipið Byr VE, fyrsta ís- lenska skipið sem sérútbúið hefur verið til þessara veiða. Byr VE reyndi fyrir sér í fyrrahaust á túnfiskveiðun- um, þegar Ijóst var orðið að japönsk túnfiskveiðiskip voru að ná ágœtum árangri innan lögsögunnar, en ís- lendingunum varð ekki eitis vel ágengt, enda ekki með í höndunum jafn vel búið skip til veiðanna ogþeir japönsku. Engu að síður þótti útgerð Byrs ástœða til að leggja út t breyt- ittgar á skipinu, gagngert til að geta haldið því úti á túnfiskveiðum í lög- sögutmi þorrann úr árittu. Byr VE hélt til Póllands síðastliðinn vetur og þar voru veigamiklar breyt- ingar gerðar á skipinu. Nýr framhluti var settur á það og skipið lengt um fjóra metra. Aðstaða var öll endurbætt verulega, jafnt íbúðir skipverja sem og vinnuaðstaða og settur um borð ýmis búnaður sem tilheyrir túnfiskveiðun- um. Breytingarnar á skipinu sjálfu kostuðu hartnær 100 milljón- um króna og kostnaður vegna búnaðar er um 50 milljónir þannig að ljóst má vera að út- gerð Byrs VE tekur mikla áhættu með þessu verkefni. Túnfiskveiðar sérhæfðar Um margt eru túnfiskveiðarnar framandi íslenskum sjómönnum. Þess vegna hefur útgerð Byrs notað tímann meðan skipið var í breytingum til að Scevar Brynjólfsson, útgerðarmaður og Sveinn Rúnar Valgeirsson, skipstjóri. (t.h.) afla sér upplýsinga um veiðarnar frá japönskum og indónesískum tún- fiskútgerðum, auk heldur sem stýri- maður Byrs fór í túr með japönsku túnfiskveiðiskip suður af landinu. Auk þess fóru japanskir og indónesískir túnfiskveiðimenn í fyrsta túr Byrs VE nú á dögunum til að kenna skipverj- um hvernig bera ætti sig að við veið- arnar. Lögð er lína með krókum og á þá er beitt smokkfiski, þ.e. svokölluðum Falklandseyjasmokki og japönskum smokkfiski. Þetta er sama beitan og japönsku túnfiskveiðiskipin nota. Lín- an á Byr er samtals um 100 sjómílur að lengd og er tölvutæknin notuð til að stjórna línulögninni. Línan er síð- an geymd á tromlu en það er frá- brugðið því sem gerist um borð í japönsku skipunum. Eftir að gert hefur verið að fiskun- um eru þeir kældir strax niður í -2 gráður og síðan í -65 gráður og geymdir í klefum með -50 gráðum. Nauðsynlegt er að nota svo mikið frost þar sem túnfiskurinn er feitur fiskur og heldur aðeins ferskleika sínum ef svona er farið með hann. í áhöfninni á Byr verða 16 menn en í fyrstu túrum verður hluti af áhöfn- inni af japönsku og indónesísku bergi brotinn. „Hefðum þurft að vera mánuði fyrr á ferðinni" Byr hélt í fyrsta túrinn þann 2. nóv- ember síðastliðinn og náði Ægir tali af Sveini Rúnari Valgeirs- syni, skipstjóra, þegar fyrstu fiskarnir voru komnir um borð. Þá var Byr VE syðst í landhelg- inni, á svipuðum slóðum og japönsku túnfiskveiðiskipin hafa verið nú í haust. Þau voru hins vegar öll farin af svæðinu en Sveinn Rúnar hafði ekki skýringu á því. „Við erum búnir að leggja línuna þrisvar sinnum og höfum fengið þrjá „Aðrar útgerðir munu vœntanlega bíða og sjá hvernig okkur reiðir afvið túnfiskveiðarnar." 10 MÆ.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.