Ægir - 01.11.1998, Qupperneq 17
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
milljónir króna, í fasteignum fyrir 63
milljónir króna og í hlutabréfum fyrir
107 milljónir króna. Kostnaðartölur
vegna breytinga á nótaskipinu Jóni
Kjartanssyni eru aðeins að hluta til
færðar á síðasta ár, en endurbyggingu
skipsins í Póllandi lauk s.l. vor.
Afkoman 1997
Eins og fram kom í upphafi nam
hagnaður Hraðfrystihúss Eskifjarðar af
reglulegri starfsemi fyrir skatta 345
milljónum króna á síðasta ári en 241
milljón króna þegar tekið hefur verið
tillit til tekjuskatts að fjárhæð 104
milljónir króna og er félagið eina út-
gerðarfyrirtæki landsins í hópi 20
kvótahæstu útgerðanna, sem greiddi
tekjuskatt á síðasta ári.
Afskriftir hækkuðu um 26,3% á síð-
asta ári en alls námu þær 226 milljón-
um króna. Fjármagnskostnaður var
136 milljónir króna og er það 27,5%
hækkun milli ára. Veltufé frá rekstri
jókst um 4,3% eða úr 539 milljónum
króna í 562 milljónir króna. Sam-
kvæmt efnahagsreikningi var bókfært
verð eigna rúmlega 3,8 milljarðar og
hafði aukist nettó um 16,7%.
Skuldir félagsins voru um síðustu
áramót rúmlega 2,4 milljarðar króna
og höfðu aukist um 11,3% milli ára.
Meirihlutinn í eigu fjölskyldu
Aðalsteins Jónssonar
Hlutabréf Hraðfrystihúss Eskifjarðar
voru fyrst skráð á Verðbréfaþingi ís-
lands fyrir um ári. í fyrra var talað um
bréfin sem hástökkvarann á íslenskum
hlutabréfamarkaði svo snöggt hækk-
aði gengi þeirra.
Stærstu eigendurnir í HE er Aðal-
steinn Jónsson, forstjóri fyrirtækisins,
og kona hans Guðlaug Stefánsdóttir,
en þau eiga um 37%. Innan fjölskyldu
Aðalsteins er hluturinn þó stærri því
Þorsteinn Kristjánsson, tengdasonur
Aðalsteins og Guðlaugar, og synirnir
Elvar og Kristinn eiga um 12% hlut. í
sumar eignaðist Grandi hf. 7,14% í
Hraðfrystihúsi Eskifjarðar og varð um
leið þriðji stærsti eigandinn. Hluthafar
voru 465 í lok síðasta árs en þeim hef-
ur farið heldur fækkandi.
Heildarhlutafé í HE er nú um 422
milljónir króna að nafnverði og miðað
við gengi hlutabréfanna í dag er mark-
aðsvirði þeirra nálægt 4 milljörðum
króna.
Alli ríki og H-20
Hraðfrystihús Eskifjarðar hf., eða H-20
eins og húsið er gjarnan nefnt eftir
framleiðslunúmeri þess, var stofnað
árið 1944 og var þegar hafist handa
um byggingu frystihúss. Rekstur þess
hófst í ársbyrjun 1947 og var Aðal-
steinn Jónsson þá ráðinn fyrsti verk-
stjóri frystihússins. Reksturinn gekk
vægast sagt illa og var mörgu um
kennt, t.d. lélegum tækjabúnaði. Hið
rétta er að frá því að frystihúsið tók til
starfa og allt fram til ársins 1960 bjó
frystihúsið við fiskleysi að nokkrum
árum undanskildum þegar síðutogar-
inn Austfirðingur, sem var í eigu Esk-
firðinga, Reyðfirðinga og Fáskrúðsfirð-
inga, og síðar togarinn Vöttur öfluðu
hráefnis fyrir húsið.
Aðalsteinn var verkstjóri í frystihús-
inu til ársins 1956 en þá sagði hann
upp störfum vegna ósamkomulags við
stjórnendur fyrirtækisins. Fjórum ár-
um seinna keypti verkstjórinn fyrrver-
andi Hraðfrystihús Eskifjarðar.
Kjölfestan
í atvinnulífi Eskifjarðar
Óhætt er að segja að Hraðfrystihús
Eskifjarðar hafi verið kjölfestan í at-
vinnulífi Eskifjarðar, sérstaklega hin
síðari ár. Hjá félaginu starfa að meðal-
tali 280 manns en auk þeirra rekstrar-
eininga sem að framan greinir rekur
félagið vélaverkstæði, rafmagnsverk-
stæði, bifreiðaverkstæði og neta- og
nótagerð. Heildarlaunagreiðslur félags-
ins voru á síðasta ári 684 milljónir
króna.
Magnús Bjarnason, réðst sem verk-
stjóri hjá Hraðfrystihúsinu þegar Alli
hætti. Hann er nú eins og fram hefur
komið framkvæmdastjóri félagsins.
Þegar hann var spurður hvort það væri
trygging fyrir toppsæti innan fyrirtæk-
isins að ráðast til þess sem verkstjóri,
svaraði hann af hægð sinni: „Nei, ætli
það, ég held nú ekki."
Æ3IR 17