Ægir - 01.11.1998, Síða 25
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
sem ræður þróun alþjóðaréttar. íslend-
ingar fengu því framgengt árið 1953,
að Sameinuðu þjóðirnar tækju þessi
mál á dagskrá. Ætlun þeirra var að um
málið yrði fjallað í Laganefndinni og
það afgreitt með einfaldri atkvæða-
greiðslu á allsherjarþinginu. Málin þró-
uðust hins vegar á þann veg, að komið
var á fót Hafréttarráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna, þar sem tekist var á um mál-
ið og það þæft fram og aftur næstu 30
árin. Árið 1983 náðist loks tilskilinn
meirihluti fyrir viðamiklum lagabálki
um réttarstöðu hafsvæðanna næst
ströndinni, með viðurkenningu á 200
mílna fiskveiðilögsögu einstakra þjóð-
ríkja. Úthafið og hafsbotninn utan
þessara marka var lýst sameign mann-
kyns. Það var ekki fyrr en í nóvember
1994 að tilskiiinn fjöldi ríkja
hafði undirritað Hafréttarsátt-
málann til þess að hann tæki
ótvírætt gildi sem alþjóðalög.
Enn hafa fæst vestrænna iðn-
ríkja undirritað sáttmálann.
Meðal þeirra sem hvað lengst
drógu lappirnar voru Norð-
menn sem alltaf hafa tvístigið
milli hagsmuna verslunarflota
síns, strandveiða og út-
hafsveiða.
Ekki leið á löngu þar til ljóst
varð að Hafréttarsáttmálinn
dugði ekki til að skera úr um
ýmis deilumál fiskveiðiþjóða. Gilti
þetta um stofna sem gengu úr einni
lögsögu í aðra (loðna, síld) og stofna
sem gengu milli lögsögu strandríkis
(eða -ríkja) og alþjóðlegs hafsvæðis,
eins og er í „Smugunni," Síldarsmug-
unni og á Reykjaneshrygg. Hafréttar-
sáttmálinn gerði einnig ráð fyrir að
svæðanefndum yrði komið á fót til að
setja reglur um veiðar á afmörkuðum
hafsvæðum. Eftir stóð hins vegar
spurningin um það, hver átti að fram-
fylgja lögum og reglum á miðum sem
voru utan 200 mílna. Þarna veiddu
flotar frá ýmsum þjóðríkjum, þar sem
mismunandi reglur giltu um veiðarfæri
og búnað skipa, veiðar á smáfiski, eftir-
lit og skráningu afla o.s. frv. Dæmi um
svona óvissusvæði er „Flæmski hattur-
inn" svokallaði undan austurströnd
Kanada.
Komið var á fót annarri ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna um úthafsveiðar
og lauk henni með samkomulagi sum-
arið 1995. Reynslan bendir þó til að
langt sé í land, þar til tilskilinn fjöldi
ríkja hefur fullgilt samkomulagið og að
sennilega muni iðnríkin, sem fyrr, láta
undir höfuð leggjast að undirrita. Eftir
er að sjá, að hvaða gagni nýi sáttmál-
inn kemur við að koma á lögum og
reglu á úthöfunum. Einnig hvort sér-
stakur alþjóðlegur dómstóll um haf-
réttarmálefni nær tilætluðum árangri
og hvort ríki muni viðurkenna lögsögu
hans og hlíta þeim úrskurðum, sem
upp verða kvaddir.
íslendingar hafa langa reynslu af
fiskveiðideilum. Þrjátíu ára stríð ís-
lendinga gegn Bretum hlaut nafnið
Þorskastríð. Á íslensku endurspeglar
nafnið aðeins blákaldan veruleikann:
Einhuga þjóð í baráttu fyrir lífshags-
munum sínum. Á ensku er nafngiftin
hins vegar ekki laus við niðrandi merk-
ingu: Að það sé fyrir neðan virðingu
hins konunglega breska flota að beita
valdi vegna svo ómerkilegrar lífveru
með köldu blóði sem syndir í sjónum.
Meðal þeirra sem á annað borð létu sig
málið nokkru varða í Bretlandi, var al-
menningsálitið mjög skipt í þessu
stríði. Strandveiðimennirnir stóðu yfir-
leitt með íslenskum fiskimönnum,
fiskimennirnir frá úthafsveiðiborgun-
um voru hins vegar á öðru máli og
stóðu gallharðir á sínum „rétti."
En það eru fleiri en íslendingar og
Bretar sem eiga í hafréttarerjum.
Reynsla undanfarinna ára hefur sýnt
að um allan heim geta fiskveiðadeilur
orðið slík hitamál að upp úr sjóði og
blóð fljóti. Haustið 1995 birtist í tíma-
ritinu National Geographic yfirlit yfir
helstu fiskveiðideilur og skærur á árun-
um þar á undan. Hér á eftir verður
stiklað yfir þetta yfirlit, til að gefa
mönnum hugmynd um, hversu víða er
tekist á um mál af þessu tagi.
Norðvestur-Kyrrahaf: Rússneska
landhelgisgæslan skýtur á tvo japanska
fiskibáta, sem sakaðir eru um veiði-
þjófnað innan lögsögunnar við
Kúrileyjar; hæfa annað skipið og
særa nokkra af áhöfninni.
Patagónía: Argentínskur fall-
byssubátur eltir skip frá Taiwan
og skýtur það niður. Áhöfninni
er bjargað.
Spratly-eyjar: Filippínskir fall-
byssubátar handtaka 62 kín-
verska sjómenn vegna veiða á
umdeildum hafsvæðum vestur
af Filippseyjum. En Kína, sem er
mesta fiskneysluland heimsins,
stefnir á úthafsútgerð og hefur
komið sér upp frystitogurum í
því skyni. Kínverjar hafa þegar náð
samningum við 15 ríki um veiðar inn-
an lögsögu þeirra.
Indland: Fiskimenn á hefðbundn-
um kænum eru sakaðir um að bera eld
að togurum. Mótmæli um allt land við
samningum um sameignarfyrirtæki
með útlendingum.
Namibía: Eftir að hafa tekið fasta
átta spænska togara fyrir ólöglegar
veiðar 1991, sér Namibía árangur gerða
sinna með eflingu hakastofnsins og
nær samningum við spænskt fyrirtæki
um sameignarfélag með 44 milljón
dollara hlutafé.
Norður-Atlantshaf: Skuttogarinn
Rex er tekinn vestur af Skotlandi fyrir
„Þrjátíu ára stríð íslendinga gegn
Bretum hlaut nafhið Þorskastríð.
Á íslensku endurspeglar nafnið
aðeins blákaldan veruleikann:
Einhuga þjóð í baráttu fyrir lífs-
hagsmunum sínum."
AGIR 25