Ægir - 01.11.1998, Síða 36
Rf mótar stefnu
sína til framtíðar
- stofnunin vill stuðla að því að áherslurnar í
sjávarútveginum færistfrá veiðum yfir til vinnslunnar
annsóknastofnun fiskiðnaðarins
hefur nú kynnt nýja
stefhumótun til framtíðar þar sem
vikið er að þeim áhersluatriðum sem
stofnunin œtlar að hafa að leiðarljósi
í starfi sínu á komandi árum.
Hjörleifur Einarsson, forstjóri Rf,
segir að þó stefnumótunin taki til
fjölmargra þátta sé meginœtlunin að
reyna að beina áherslunni í
sjávarútvegi frá veiðum og að
vinnsluþcettinum sjálfum og þeim
afurðum sem íslendingar eru að
framleiða úr fiski. Full ástœða sé til
að œtla að íslendingar geti náð enn
betri árangri í sölu á fiskafurðum en
hingað til og því sé lykilatriði að hefja
markvisst starf.
„Með stefnumótuninni höfum við
reynt að finna nýtt andlit á stofnunina
og koma okkur um leið meira inn í
umræðuna. Ætlun okkar er að koma á
hugarfarsbreytingu í sjávarútveginum
vegna þess að okkur finnst áherslurnar
á veiðarnar sem slíkar vera óþarflega
miklar ef mið er tekið af því að veið-
arnar eru aðeins upphafið að ferli sem
endar hjá kaupandanum á hinni end-
anlegu vöru. Það má því segja að
stefnumótunin sé leið sem við viljum
fara til að flytja áhersluna yfir í mat-
vælavinnsluna í sjávarútveginum. Um-
ræðan hefur verið mikil um framhalds-
vinnslu eða fullvinnslu í sjávarútvegi
en samt sem áður hefur hún ekki skil-
að breyttum áherslum í greininni,"
segir Hjörleifur.
Mikil og vaxandi áhersla verður
lögð á upplýsingamiðlun hjá Rf í fram-
tíðinni, bæði með námskeiðahaldi,
36 ÆGIR --------------------------
miðlun upplýsinga til framleiðenda
beint frá Rf, miðlun upplýsinga í gegn-
um fjölmiðla, net og þannig mætti
áfram telja. Tengsl við viðskiptavini
stofnunarinnar og aðra hagsmunaaðila
í sjávarútvegi verða efld á markvissan
hátt en Rf skilgreinir sig sem fram-
leiðslu- og úrvinnslufyrirtæki í sjávar-
útvegi og öðrum matvælaiðnaði. Þar
verður lögð áhersla á rannsóknir, þjón-
ustumælingar og fræðslustarfsemi sem
nýtist fyrirtækjum til að auka sam-
keppnishæfni á innlendum og erlend-
um mörkuðum.
„Fyrirtæki í sjávarútvegi eru að
stækka og skilgreina sig frekar sem
matvælavinnslufyrirtæki. Við erum til-
búin til að vera leiðandi í þessu ferli
hvað varðar rannsóknir, upplýsingar
og ráðgjöf og fylgja þannig breyting-
unni eftir. Staðreyndin er sú að það er
mikill akur óplægður og nægir að
benda á að Danir eru að gera sér meiri
pening úr fiski en við íslendingar.
Sannarlega er góður árangur að geta
selt fisk á hærra verði en kjöt en samt
sem áður spurning hvort ekki megi
gera enn betur," segir Hjörleifur Einars-
son, forstjóri Rf.
ifr láiMÉÍ-
Hrevtingurp
Umhverfisstefna LÍÚ
Umhverfisstefna Landssambands
íslenskra útvegsmanna var sam-
þykkt á aðalfundi LÍÚ í byrjun
nóvember. Stefnan er í 8 eftirfarandi
liðum:
1.
LIÚ mun vinna að því að viðhalda
hreinu og heilnæmu svæði umhverfis
Island.
2.
LÍÚ mun stuðla að áframhaldandi
sjálfbærri nýtingu auðlinda sjávar.
3.
LÍÚ mun beita sér fyrir því að
útbúnaður veiðarfæra leiði til góðrar
nýtingar auðlinda sjávar.
4.
LÍÚ mun beita sér fyrir eflingu
hafrannsókna.
5.
LÍÚ mun beita sér fyrir því að
leiðbeina félögum þannig að þeir
séu betur í stakk búnir að uppfylla
kröfur sem koma fram í lögum og
reglum.
6.
LÍÚ mun kappkosta að upplýsa
almenning um umhverfisáhrif
útgerðarinnar.
7.
LÍÚ mun markvisst vinna að eflingu
umhverfisvitundar útgerðarinnar.
8.
LÍÚ mun vinna að því að fá
stjórnvöld og aðra aðila í sjávar-
útvegi til liðs við sig um þessa
umhverfisstefnu.