Ægir - 01.11.1999, Side 11
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
brögðum þegar kröfugerðir verði settar
fram. Aðspurður hvort FFSÍ, Sjó-
mannasamband íslands og Vélstjórafé-
lag íslands muni fylgjast að í kjaravið-
ræðum segir hann það ekki hafa verið
rætt.
„Þessir aðilar hafa sameiginlega
hagsmuni en það hafa engar ákvarð-
anir verið teknar um samflot. Við eig-
um örugglega eftir að vinna saman í
kjarabaráttu, hvað sem líður samfloti
við kjarasamningagerðina sjálfa. Ég
vona sannarlega að ég eigi eftir að ná
góðu samstarfi við forsvarsmenn sjó-
manna og vélstjóra, og ekki síður sjáv-
arútvegsráðherra, starfsfólk í ráðuneyt-
inu og hjá Hafrannsóknarstofnun.
Samstarf er mjög mikilvægt ef nást á
góður árangur," segir Grétar Mar.
Gagnrýnin hefur reynst rétt
Hinn nýi forseti FFSÍ er skipstjóri á
Látrarös ÍS-100, sem hann á sjálfur
hlut í. Hann segir ljóst að lítið verði
um sjóferðirnar á næstunni enda taki
nú við starf á skrifstofu FFSÍ. Grétar
hefur verið ómyrkur í máli þegar
komið hefur að umræðunni um
kvótakerfið en mun hann setja á
oddinn í sínu starfi að snúa ofan af
kvótakerfinu.
„Ég geri mér fulla grein fyrir að slíkt
er ekki framkvæmanlegt og viðamiklar
breytingar geta ekki gengið yfir nema
á löngum aðlögunartíma. Annað er
óraunhæft. Hins vegar er það þing
FFSÍ sem er stefnumótandi fyrir
samtökin og við höfum í gegnum árin
gagnrýnt kerfið og bent á afleiðingar
þes^, meðal annars hvernig kvótinn
safnast á fárra hendur. Staðreyndin er
sú að flest af okkar gagnrýnisatriðum
hafa komið fram og við höfum því
haft á réttu að standa," segir Grétar
Mar Jónsson, forseti Farmanna- og
fiskimannasambands íslands.
SÓLEY SIGURJÓHS GK-100
Óskum útgerð og áhöfn til hamingju með
breytingarnar. Ilm borð er NKG krani.
AOR 11