Ægir - 01.11.1999, Qupperneq 30
TWi afþekktum fyrírtœkjimi á raf-
eindatœkjamarkaðnum í sjávar-
útvegi runnu saman í byrjun hausts,
þ.e. fyrirtœkin Skiparadíó og Rapuis.
Sameiningin átti sér stað nánast á
sama sólarhríng og íslenska sjávarút-
vegssýningin var opnuð og því ráku
margir upp stór augu þegar við blasti
á sýningunni merkið Meðbyr en það
er vörumerki fyrírtcekisins, sem rekið
er undir nafni Rafhúss elif.
Finnur Jónsson, framkvæmdastjóri,
segir að nýir eigendur hafi komið að
rekstrinum, alls níu einstaklingar.
Meðal þeirra eru Finnur sjálfur, sem og
Vilhjálmur Árnason en báðir störfuðu
þeir hjá Skiparadíói. Báðir starfa þeir
Finnur Jónsson og Vilhjálmur Ámason kynntu Meðbyr á fslensku sjávanitvegssýning-
unni og segir Finnur að viðtökurnar hafi verið góðar á fyrstu mánuðum fyrírtœkisins.
enn betur á við samkeppnina," segir
hann.
Tvöfyrirtœki á tœkjamarkaðnum
runnu saman í Meðbyr:
Sterkari staða
á markaðnum
- segir Finnur Jónsson, framkvœmdastjóri
hjá Meðbyr í dag, sem og þrír starfs-
menn á verkstæði. Finnur segir viðtök-
urnar á íslensku sjávarútvegssýning-
unni hafa verið góðar, enda hafi fyrir-
tækið að bjóða mjög breiða línu raf-
eindatækja í skip og báta. Þar á meðal
eru fiskileitartæki, siglingatæki, stað-
setningartæki, fjarskiptatæki og sjálf-
stýringar. Meðbyr er umboðsaðili fyrir
þekkt vörumerki á borð viðJRC, Scan-
troll, Westmar og Komnav.
„Við erum sterkastir í smærri báta
flotanum. Það helgast kannski fyrst og
fremst af því hvaða áherslur voru hjá
Rafhúsi áður en sameiningin gekk ýfir.
En það er ljóst að þjónustusviðið hjá
okkur er hratt stækkandi upp á við í
tonnum talið," segir Finnur í samtali
við Ægi. Hann segir samkeppnina
mikla á markaðnum, „en hver er hún
ekki til staðar í nútímarekstrarum-
hverfi. Við erum sterkari á markaðn-
um eftir sameiningu fyrirtækjanna
tveggja og ættum því að geta tekist
Enn seinkun á gildistöku
GMDSS reglugerðar
Ljóst er að enn er að verða seinkun á
gildistöku reglugerðar um svokallaðan
GMDSS fjarskipta- og öryggisbúnað
fyrir skipaflotann, en sala á þessum
búnaði er eitt aðalverkefna hjá Með-
byr þessa dagana. Finnur segir ljóst að
í fyrsta iagi um mitt næsta ár muni
GMDSS búnaður verða skylda um
borð í skipum en engu að síður hugi
margir að því að búa sín skip út með
búnaðinum.
„Við höfum hér yfir að ráða verk-
stæði sem sérhæfir sig í viðgerðum og
uppsetningu á rafeindatækjum í skip
og það skiptir viðskiptavinina miklu.
Óskir viðskiptavina snúast í dag um
heildarlausnir, jafnvel þó að þeir kaupi
sjaldnast heilar tækjalínur í skip sín
frá sama aðila. Eftir þessu óskum vinn-
um við og erum ánægðir með þær við-
tökur sem við höfum fengið á fyrstu
mánuðunum," segir Finnur Jónsson.
30 ÆGIR