Ægir - 01.11.1999, Qupperneq 44
Almennt
Sóley Sigurjóns er upphaflega ítalsk-
ur togari, smíðaður árið 1971. Hingað
til lands kom skipið fyrst sem rækju-
togari, raunar fyrsti rækjutogarinn
sem var með vinnslubúnaði. Hét skip-
ið þá Dalborg og var gert út frá Dalvík
með Snorra Snorrasson lengstum sem
skipstjóra.
Síðar fór skipið til Suðurnesja, fékk
þá nafnið Eldeyjarsúla GK, áður en
nafninu var breytt í Sóley Sigurjóns.
Þetta er í annað sinn sem gerð er veru-
leg breyting á togaranum og má segja
að hann sé nánast óþekkjanlegur frá
því hann kom hingað til lands fyrst.
Breytingar nú
Eftirfarandi eru helstu breytingar
sem framkvæmdar voru Sóley
Sigurjóns í Póllandi:
- Lenging um 4,50 metra, stefni
stytt þannig að skip færi ekki yfir 42
metra.
- Byggt yfir skipið að framan, en
hvalbakurinn var áður opinn.
- Smíðað var á skipið nýtt perustefni.
- Skipt var um alla klæðningu og
einangrun í lestum.
- Stoðir í lestum voru fjarlægðar og
dekk styrkt.
- Millidekk/aðgerðardekk var klætt
upp á nýtt.
- Einn íbúðarklefi endurnýjaður,
svo og bað- og snyrtiherbergi.
- Settur um borð nýr 27 t/m
löndunarkrani frá MKG.
- Öll aðstaða á aðgerðarþilfari
endurbætt
- Settar stífur fyrir kör í lest.
- Sett um borð ný CATERPILLAR
ljósavél, 240 kW.
- Smíðaður og settur upp nýr WC
tankur.
- Skipið allt sandblásið, galvaniserað
og málað með International skipa-
málningu frá Hörpu.
SÓLEY SIGURJÓNS GK 200
Óskum útgerð og áhöfn SÓLEYJAR SIGURJÓNS GK 200
til hamingju með nýja skipið. Við sáum um
hönnun, gerð teikninga og eftirlit með verkinu.
SKIPA- OG VÉLATÆKNI ehf
RÁÐGJÖF, HÖNNUN OG EFTIRLIT
Hafnargötu 60, pósthólf 38 Keflavík
Sími: 421 5706, Fax: 421 4708
44 M3m