Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1955, Blaðsíða 16
14
sem námsmanna hér glepja fyrir ykkur, villa ykkur sýn. Hér
verður mikils af ykkur krafizt, en að vísu ekki meira en góðum
námsþegn hæfir.
Ég hefi minnzt á verkefni ykkar sem nemenda í deildum há-
skólans, sjálft sérnámið, og hvaða kröfur sé til ykkar gerðar
um ástundun þess, kröfur sem sjálft námsfyrirkomulagið og
námsáætlun sú, sem fylgt er í hverri grein fyrir sig, felur í sér.
En það sé fjarri mér að láta sem þá sé allt upp talið og öllu
borgið. Vitanlega er nauðsynlegt að hver stúdent nái góðum
árangri í námsgrein sinni. Þjóðin þarf á velmenntuðum sér-
fræðingum að halda. En hún þarf jafnframt á mönnum að
halda, sem aflað hafa sér fjölþættrar menntunar og helzt þarf
þetta í okkar fámenna þjóðfélagi að fara saman.
Oft heyrist talað um það hin síðustu ár, að skólarnir og
hin langa, samfellda skólavist unga fólksins skapi námsleiða
og valdi því, að menn komi loks úr skólanum að vísu allvel
færir í sérgrein sinni, þeir sem í háskóla fara, en þess utan fá-
fróðir og í rauninni ómenntaðir. Þeir, sem fastast kveða að orði
í dómum sínum, eru sjaldan réttlátustu dómararnir. Ég hefi
nefnt þetta vegna þess, að öfugþróun, slík sem hér var bent
til, er í sjálfu sér háskaleg, og við henni ber að sporna af al-
efli. Vel má vera, að kennsluskipulag okkar Islendinga beri í
sér nokkra hættu á þessu. Skefjalaus efnishyggja og ströng
sérhæfing, sem nú er mjög á loft haldið, miðar og að því að
draga úr áhuga á f jölþættri menntun, og ef til vill er þetta eitt
mesta mein nútímans. Mín eigin reynsla er sú, að fyrir 20—30
árum hafi skólar vorir ekki fremur en nú veitt nemendum
slíka menntun, nema að mjög litlu leyti, heldur ef svo mætti
kalla lagt nokkum grundvöll til hennar. Hafi þessu hrakað
síðan, er slíkt að sjálfsögðu illa farið, því hér var áreiðanlega
fremur þörf umbóta. Ég vil nú gera ráð fyrir því, að hér muni
samt ekki miklu. Nú eins og þá mun það einkum komið undir
áhuga og elju hvers einstaks námsmanns, hversu honum tekst
að hagnýta sér þá fræðslu, sem skólamir hafa veitt honum,
til þess að afla sér fjölbreyttari og víðtækari menntunar.