Búnaðarrit - 01.01.1940, Síða 2
BÚNAÐARRIT
Búnaðarfélag íslands
hefir skrifstofu i Reykjavík, Lækjargötu 14 B. Skrifstofan gefur
upplýsingar og ieiðbeiningar í öllum greinum landbúnaðarins,
eftir því, sem starfsmenn félagsins geta í té iátið. Starfsmenn og
aðalstarfsgreinar eru sem hér segir:
1. Búnaðarmálastjóri: Steingrímur Steinliórsson, hefir yfirum-
sjón starfsgreina og starfsmanna, í sainráði við stjórn félags-
ins. Sími 3110 og 5494.
2. Jarðyrkja: Ráðunautur Pálmi Einarsson, annast allar mæl-
ingar fyrir stærri jarðabótum, einkum áveitum, framræslu
og sandgræðslu, og hefir umsjón með framkvæmd jarðrækt-
arlaga. Sími 2718 og 3971.
Samskonar mælingum gegnir Asg. L. Jónsson, vatnsvirkja-
fræðingur, undir umsjón félagsins, en á kostnað ríkissjóðs.
3. Garðyrlcja: Ráðunautur Ragnar Ásgeirsson, annast garð-
yrkjutilraunir við liéraðsskólann á Laugarvatni og leiðbeinir
í garðrækt. Símastöð: Laugarvatn.
4. Grasfrærækt og kornrækt: Ráðunautur Klemenz Kr. Krist-
jánsson. Hann rekur tilraunastöð félagsins á Sámsstöðum i
Fljótshlíð, og leiðbeinir um allt er að grasfrærækt og korn-
rækt lýtur. Simastöð: Breiðabólsstaður.
5. Hrossarækt: Ráðunautur Gunnar Bjarnason, annast allt er
að hrossarækt lýtur. Simi 3110 og 5550.
6. Nautgriparækt: Ráðunautur Páll Zóphóniasson, veitir allar
leiðbeiningar um nautgriparækt. Sími 2151 og 2278.
7. Sauöfjárrækt: Ráðunautur Halldór Pálsson, annast allt er
lýtur að sauðfjárrækt, ásamt fóðurbirgðafélagsskapnum.
Sími 2151.
8. Fiskirækt: Ráðunautur Ólafur Sigurðsson, bóndi á Hellu-
landi. Síinastöð Sauðárkrókur.
9. Útgáfa Búnaðarblaðsins Freyr: Ritstjóri Árni G. Eylands.
Afgreiðsla og innheimta á skrifstofu félagsins.
Þcir, sem óska leiðbeininga, sendi um það skriflega beiðni til
skrifstofu félagsins. Öllum fyrirspurnum er svarað ókeypis.