Búnaðarrit - 01.01.1940, Page 7
Kvillar og ræktun.
Eftir Ingólf Davíðsson.
a. Kartöflur.
Allmikil brögð urðu að ýmsum kartöflukvillum s. 1.
sumar. Varð myglan þeirra skæðust sunnanlands. 1
júní og jiilí var veðrátta hlý og óvenjulega þurr við-
ast hvar. Þurfti elcki að óttast mygluna meðan þurrk-
arnir héldust, en því miður treystu margir þvi að
þeir myndu haldast allt sumarið og gleymdu að úða
eða dreifa dufti til varnar meðan tími var til. Hlýind-
in héldu áfram í ágúst og september, en þá tók a&
rigna öðruhvoru. Fékk myglusveppurinn þá hin beztu
skilyrði, enda tólc þá að bera á myglu hér og þar,
fyrst í smáblettum, sem óðum stækkuðu í ágústlok
og í september. Hélt myglan áfram að breiðast út allan
þann mánuð. Myglan kom seint í sumar. Reyndist
ein úðun tæplega nægileg, þegar um myglunæm af-
brigði var að ræða. En tvær úðanir, hin fyrri í júlí-
lok og hin um 3 vikum seinna, dugðu. Úðunartíminn
fer eftir veðráttu. Vökvinn reyndist öruggari til varn-
ar en duft. Ein til tvær úðanir duga í meðalsumri, en
ekki veitir af að dreifa dufti tvisvar til þrisvar sinn-
um, sé það notað. Nú fæst duft eða mjöl, sem leysa
má upp í vatni til úðunar. Er það handhæg aðferð. í
hæjum og þéttbýli verður úðun að vera skylda. Ann-
ars getur einn sjúkur garður smitað mikið út frá sér.
Er eflaust réttast að fela einum manni á hvcrjum
stað að sjá um framkvæmdirnar fyrir garðeigendur.