Búnaðarrit - 01.01.1940, Blaðsíða 10
8
BÚNAÐARRIT
tíminn er langur. Ætti að reyna þær á myglusvæðinu.
Dálítil tíglaveiki sást í Akurblessun og mun sumstað-
ar hafa dregið ögn úr uppskeru. Alpha spírar seint.
Þarf að leggja hana til spírunar á undan öðrum af-
hrigðum. Jarðargull er einnig ágæt matarkartafla.
Kartöflurnar liggja mjög nærri grasinu og léttir það
upptöku. Nokkurrar tiglaveiki varð vart í Jarðargulli
í sumar. f sandgörðum á Eyrarbakka bar nokkuð á
því að sprungur kæmu í kartöflurnar.
Eyvindur og Up io date eru alkunn afbrigði. Ey-
vindur gefur oft mikla uppskeru og þolir fremur vel
myglu (veiktist samt nokkuð í sumar) en er oft mjög
stöngulveikur. Up to date er heldur næm fyrir
myglu.
Birgitta er lítt reyrid hér. Dcodara er eiginlega iðn-
aðarkartafla, höfð til vínandagerðar á Norðurlöndum,
cn er einnig sæmileg lil matar. Stóri Slcoti (Great Scot)
er alkunnur. Er fremur bráðþroska. Þolir myglu sæmi-
lega, þó verr en Eyvindur, en er vel hraustur gegn
stöngulveiki. Webbs er frjósöm kartafla, en heldur
myglunæm. Jubcl þolir kláða ágætlcga. Ætti að regna
hana í kláðagörðum. Ýms fleiri afbrigði voru reynd.
Sagerud er bragðgott, en fremur myglunæmt afbrigði.
Gullauga er auðugast af mjölvi allra útlendu afbrigð-
anna og mjög bragðgott, en ekki vel mygluhraust. Hef-
ir gefizt vel og verið reynt í allmörg ár hjá Klemensi á
Sámsstöðum. Af bráðþroska afbrigðum má nefna
Ducker, sem einkum hefir verið reyndur á Sámsstöð-
um. Hér spratt hann illa í sumar og mun lélegu útlendu
úlsæði um að kenna. Jórvíkurliertogi (Duke of York)
er góð, fremur snemmvaxin matarkartafla, en hefir
verið allmikið tiglaveik. Islenzku Eggcrzkartöflurnar
voru einnig reyndar. Bezt óx rauða afbrigðið. Var 1
kg undir grasi að jafnaði. Stöngulveiki varð vart í
því. Hin tvö, hið gula og bláa gáfu 700 grömm undir
grasi og voru heilbrigð.