Búnaðarrit - 01.01.1940, Síða 16
14
BÚNAÐARRIT
rófna á sýlctu svæðunnm. Gulrætiir eru mjög góðar
til matar og kálmaðkurinn lætur þær i friði. Jafn-
framt þarf nauðsgnlega að banna algerlega innflutn-
ing á gulrótum, því annars er hætt við að skaðsemd-
arskepna, gulrótarflugan, flytjist fyrr eða síðar inn
með þeim og hindri ræktun þeirra hér á landi.
Á sniglanagi bar heldur lítið í sumar. Reyndist vel
að dreifa á þá kalkdufti (melkalk), eða blásteinsdufti
snemma á morgnana eða þegar döggvott var. Sót gerir
nokkurt gagn. Sniglar láta oftast bordeaux-úðaðar
jurtir í friði. Lítið var uin trénun i rófum, enda hlýtt
og gott sumar. Kálmöls varð litillega vart. Nagar lirfa
hans göt á kálblöðin. Á hann heima víða um heim, allt
norður til Grænlands. Sennilega hefir hann lengi átt
heima hér á landi. Vínþrúgumgglu sá ég sumstaðar í
rófum í fyrravetur. Getur hún skemmt rófur o. fl.
i geymslu. Verða rófurnar blautar innan, en að utan
sjást æxlunarfæri sveppsins, sem svartir klasar eða
örður í hvítu mygluþali. Svöl og þurr geyinsla dregur
úr hættunni. Talsvert bar á bórvöntun i rófum. Séu
veikar rófur skornar í sundur, sjást glærir, líkt og
vatnsósa blettir, þurrir og svampkenndir. Þegar líður
á sumarið dökkna blettirnir oft. Loks geta komið
bakteríur í skemmdirnar og valdið votrotnun. Bór-
vöntunarveikar rófur eru óhæfar til matar. Veikin staf-
ar al' skorti á efninu bór í jarðveginn og er verst í
þurrkasumrum og í þurrum kalkbornum jarðvegi.
Oftast nægir að bera 2 grömm af bóraxi á fermetra að
vorinu. Má blanda bóraxinu saman við sand eða salt-
pélur svo það dreiíist sem jafnast. Einnig má leysa
það upp i vatni og úða eða vökva með blöndunni.
Bórax fæst í lyfjabúðum. (Járnsmiðir nota það einnig.)
Æxlavciki (Kaalbrok, Klumprod) er hættulcgur
krossblómakvilli. Sjúkdómseinkennin eru æxli og
linúðar á rótunum. Dregur þetta mjög úr vexti kál-
jurta og rófur verða oft óætar, dökkna að lokum og
J