Búnaðarrit - 01.01.1940, Side 21
BÚNAÐARRIT
19
skap lil eflingar búnaðinum í hverri grein. Ætlaðist
amtmaður til, að hvert þessara félaga semdu sér lög
eftir því sein félagsmönnum kæmi saman um, og stofn-
uðu félagssjóði af fríviljugum samskotum eða árstil-
lögum. Skyldu svo félögin kjósa sinn fulltrúa hvert á
sýslubúnaðarfélagsfund, er samræma skyldi lög
hreppafélaganna, eftir því sem unnt væri, og vera
sem tengiliður á milli þeirra. Mun þarna í fyrsta sinni
skjóta upp hugmyndinni um búnaðarsambönd liér á
landi, þótt hún ekki yrði að framkvæmd fyrr en
löngu siðar.
Undirbúningsfundur undir stofnun Bún. Hún.1) var
haldinn að Miðhúsum 5. sept. 1863. Ekki sést í fundar-
gerðinní hver hefir til þess fundar stofnað. En ætla
má að hann hafi haldinn verið að afloknum kjörfundi
eða öðrum almennum héraðsfundi, að tilhlutun ein-
hvers áhugasams hreppstjóra í sýslunni. Ekki sést
heldur hve margir menn voru þar mættir. En forseti
l’undarins var kosinn kammerráð Christian Christiáns-
son, og skrifari Páll stúdent Vidalín í Víðidalstungu.
A fundinum var til umræðu áðurnefnt bréf amtmanns
l’rá 5. júní þá um vorið. Þar var samþykkt „að nauð-
synlegt væri að stofnað væri sýslufélag og sýslusjóð-
ur í áðurnefndu augnamiði." Var síðan kosin 5 manna
nefnd, er semja skyldi lög er lögð yrðu fyrir stofnfuntl
félagsins. í þá net'nd voru ltosnir: Guðmundur pró-
fastur Vigfússon á Melstað, með 11 atkv., Páll slúdent
i Víðidalstungu og Ólafur hreppstjóri Jónsson á
Sveinsstöðum, með 10 atkv. hver, Jósef læknir Skafta-
son í Hnausum, með .9 atkv. og sýslumaður Ch.
CJiristiánsson á Geitaskarði, með 8 atkvæðum.
Ætlast var til að sjóður félagsins myndaðist ann-
að hvorl af tillagi nokkru frá hreppsbúnaðarfélög-
1) Svo skammstafa ég liér eftir Búnaðarfélagið í Húnavatns-
sýslu.