Búnaðarrit - 01.01.1940, Síða 24
22
BÚNAÐARRIT
skyldu greiða árlega 1 rd. hver í félagssjóð, eða í eitt
skipli minnst 8 rd. nema heiðursfélagar, skyldu ekkert
gjald þurfa að greiða. Embættismenn félagsins voru
forseti, féhirðir og skrifari, ennfremur varaforseti,
varaféhirðir og varaskrifari. Höi'ðu þeir störfin að-
eins eitt ár á hendi, nema þeir væru endurkosnir.
Verðlaunum er heitið, í lögunum, fyrir framúrskar-
andi dugnað að jarðarbótum eða hverju öðru, sem er
í anda við félagið. Sömuleiðis fyrir góðar ritgerðir,
og eru einnig í lögunum reglur um hvernig dæma
skuli um ritgerðir og jarðarhætur.
Þessir voru kosnir í fyrstu stjórn: kammerráð
Christiansson, forseti, með 12 atkv., J. Skaftason lækn-
ir, féhirðir, með 8 atkv. og stúdent P. Vídalín, skrifari
með 10 atkvæðum. Varaforseti, séra G. Vigfússon
Melstað, með 11 alkv., varaféhirðir Ólafur á Sveins-
stöðum með 8 atkv. og varaskrifari, Jón prestur Krist-
jánsson í Steinnesi, með 6 atkvæðum.
Þessir sömu menn voru síðan árlega endurkosnir í
stjórn félagsins, þangað til 1869 að Ásgeir alþm. Ein-
arsson var kosinn varaféhirðir i stað Ólafs á Sveins-
stöðum, sem þá hefir þótt fullséð um að ekki fengi
lieilsu sina aftur.
Lögin voru prenluð i prentsmiðju Norður- og Aust-
urumdæmisins 1865. Höfðu þau verið undirrituð að
Miðhúsum 10. dag júní mánaðar 1864, og þessir menn
undirritað þau: Chritian Christiansson sýslumaður á
Geitaskarði, Jósef læknir Skaftason í Hnausum, Ólaf-
ur Jónsson hreppstjóri á Sveinsstöðum, Guðmundur
prófastur Vigfússon á Melstað, Þorlákur prestur Ste-
l'ánsson Undirfelli, Jón prófastur Þórðarson á Auð-
kúlu, Jón alþm. Pálmason í Sólheimum, Jón prestur
Kristjánsson i Steinnesi, Guðmundur bóndi Gíslason
Bollastöðum, Guðmundur bóndi Arnljótsson Guð-
laugsstöðum, Páll hrenpstjóri Ólafsson á Flögu, síðar
á Akri, Daniel hrcppstjóri Jónsson á Þóroddsstöðum,