Búnaðarrit - 01.01.1940, Side 32
30
B Ú N A Ð A R R I T
um bil 520 ríkisdali, milli lireppanna eftir lausafjár-
tiund í sýslunni, og komst fundurinn að þessari nið-
urstöðu, þó þannig að féð þyrfti ekki fyrr að greiða
en í næstu kauptíð. Alþm. Ásgeir Einarsson tókst á
hendur að litvega fé þetta nú þegar, gegn því að allir
fundarmenn, að undanskyldum 4 nafngreinduin
mönnum, ábyrgðust, að honum yrði endurgoldið það
í næstu kauptíð.
Forseti fundarinns gat þess, að aintmaður Havstein
liefði lofað að styðja fyrirtæki þetta með 20—50 rd.
af búnaðarsjóði Norður- og Austuramtsins. Sést af
þessu að félagsmenn hafa strax um sumarið skrifað
amtmanni um hugmyndina. Sömul. sýndi Skaplasen
læknir bréf frá Hölpfner kaupmanni, þar sem hann
lofar að styrkja þetta fyrirtæki með 100 ríkisdölum í
allt. Ennfremur er þess getið að alþm. Ásgeir Einars-
son lofar að styrlcja fyrirtækið með 100 rd. Lítur helzt
út fyrir að þessir 200 rd. hafi átt að meira eða minna
leyti að ganga til stol'nunar fyrirmyndarbúsins.
Síðan voru kjörnir 5 menn til þess að sernja bréf
til hreppanna, og voru þessir kjörnir til þess: Kam-
merráð Christianson, læknir Skaptason, stúdent P.
Vídalín, prófaslur J. Þórðarson og dbrm. Ó. Jóns-
son.
Að síðustu eru svo á þessum fundi kjörnir þessir
menn: Kammerráð Christianson, læknir Skaptason,
prófastur G„ Vigfússon og alþm. Jón Pálmason til þess
að semja erindisbréf handa Torfa. Sýnist sem nær
hefði legið fyrir þennan fund að kjósa menn til þess
að gera sanming við Torfa um hverjum skyldum hann
væri bundinn félaginu, eftir að það hel'ði kostað hann
til siglingar, heldur en að fara að skrifa honum er-
indisbréf, eða einskonar forskrift fyrir hegðun sinni
eða starfstilhögun í siglingunni. En Torfi virðist hafa
verið mjög laust bundinn félaginu eins og síðar kom
fram.