Búnaðarrit - 01.01.1940, Page 44
42
BÚNAÐARRIT
Ég hefi hér að framan reynt að lýsa, eftir föngum,
stofnun, starfsháttum og stjórn Biin. Hún. að öðru en
fjárhagsstjórn þess. Henni er ekki svo auðvelt að
lýsa, því í fyrsta lagi hefi ég enga reikninga félags-
ins eftir 1877 séð, eða getað náð í, því reikningar
hinnar síðustu stjórnar, áður en sýslunefndin tók
stjórnina í sínar hendur hafa ekki verið færðir inn i
reikningabók félagsins, sem fram til þess tima var
haldin. Þó er þar óinnfærður, aðalreikningur fyrir
1876—77. Aðeins 2 fylgiskjöl, sem sjáanlega tilheyra
þeim reikningi. Annað þeirra sýnir útborgun á kr.
120,00 í verðlaun til 6 manna fyrir vel unnar jarðar-
bætur. Hitt sýnir að innheimtst hafa á þessu tímabili
kr. 142,00, sein ársgjöld félagsmanna. Hefði því sjóð-
urinn átt að vaxa á tímabilinu um kr. 22,00. Síðasti
reikningur þar áður, sem gerður var af sýslumanni
B. E. Magnússyni, 31. des. 1875, sýnir að þá átti fé-
lagið í sjóði:
Hjá alþm. Ásg. Einarssyni ............. kr. 264,00
•— viðtakandi féhirði B. G. Blöndal .... — 171,33
— forseta félagsins B. E. Magnússyni . . — 40,00
ógreidd tillög 2 manna ................ — 4,00
Samtals kr. 479,33
Þegar þar við bætast framangreindar .... — 22,00
Verða það samtals kr. 501,33
sem virðist vera sú upphæð, sem sýslunefndin hefir
tekið við til umráða. Þó líklega meira, því á fundi
24. júní 1878, sem innfærður er í fundarbókina af
E. Briem, sem varaforseta, er Jiess gelið, að lagður
liafi verið fram á fundinum reikningur félagsins, og
sýni hann, að íelagið eigi þá á ýmsum, þar til teknum
stöðum, samtals kr. 704,57, að meðtöldum óinnheimt-
um gjöldum félagsmanna, samtals kr. 106,00. Auk
þess eigi fél. 1 herfi, 1 skóflu og 1 kvísl og rúmlega
200 expl. af ritgerð um fátækramál.