Búnaðarrit - 01.01.1940, Page 49
Um smjörsamlög.
Eftir Svein Tryggvason.
Á síðari árum hafa ýmsar plágur steðjað að ís-
lenzkum landbúnaði. Einkum á þetta þó við þau
héruð, þar sem hin illræmda mæðiveiki hefir hrifsað
lil sin mikinn hluta af sauðfjárstofni bænda. Þau
héruð, sem þessi vágestur hefir sótt heim, og sem
að miklu leyti hyggðu afkomu sína á sauðfjárrækt,
hafa því eðlilega leitað eftir nýjum framleiðslumogu-
leikum, en á voru kalda fjallalandi eru vitanlega ekki
nýir framleiðslumöguleikar á hverju strái. Hugur
llestra hefir því aðallega heinzt í tvær áttir: loð-
dýrarækt og aukna mjólkurframleiðslu.
í sambandi við aukna mjólkurframleiðslu hafa þó
komið fram vissir örðugleikar, er þar aðallega átt
við hversu erfitt er með sölu á nokkrum hluta mjólk-
urinnar, þ. e. undanrennunni.
Síðan árið 1928 hafa verið byggð 6 stór og full-
komin mjólkurbú, sem gera nokkrum hluta framleið-
endanna kleift að koma allri mjólk sinni í verð. Það
er því engin furða að bændur, liti í hinum dreifðari
hyggðum, l'ýsi að eignast slílc framleiðslutæki. Hefir
því víða verið um það rætt, hvort eklci væru lök á að
hyggja fleiri mjólkurbú. Umræður þessar hafa þó
íillt af leitt í Ijós vandkvæði þau, sem eru á byggingu
mjólkurbúa: Stofnkostnaður er mikill, sömuleiðis
rekstrarkostnaður og erfilt hefir verið að koma af-