Búnaðarrit - 01.01.1940, Page 78
76
BUNAÐARRIT
tekjurýrnun stafi af rýrnun á kyninu og ekki
finnst mér ær minar ganga verr fóðraðar undan
vetrinum nú en fyrr. Veturnir hafa ekki verið yfir-
lcitt óhagsælli í seinni tíð, en áður var. Fóðureyðslan
fer J)ó vaxandi.
Að fóðrun ánna fer ekki hnignandi, sé ég á fjár-
vigtinni, sem fer fram með reglu flesta vetra.
Bezta kjötframleiðslan eftir liverja á, er 1926.
Minnst er hún eftir ána 1934. Veturinn 1926 var hag-
sæll og ágætt vor og sumar. Veturinn 1934 var líka
hagsæll, en vorið mjög kalt og gróðurlítið fram í júni
svo ám var hér gefið þar til seint í maí og sumarið
var votviðrasamt, og hefir það dregið mjög úr þroska
lambanna, og þar við bætist sennilega meiri orma-
veiki í lömbunum það sumar en sumarið 1926. —
Athyglisvert er það, að árið 1934 þegar ærnar eyða
miklu l'óðri er kjötframleiðsla þeirra minnst. Líkindi
eru til þess, að innyflaormar berist úr töðunni í féð,
því meiri sem töðugjöfin er því meiri ormar og minni
afurðir. Það þarf að rannsaka það álít ég, hvað
snemma onnar gera vart við sig i lömbum og hvort
ekki muni rétt að gefa þeim inn tetraklórkolefnis-
hlöndu eða annað ormadrepandi meðal á vorin eða
sumrin eftir því, sem til þeirra næst.
Vanhöldin hefi ég i fjórum dálkum. Hefi með svo
mörgurn dálkum gleggra yfirlit yfir hvernig á þeim
slendur. Vorlambadauðinn er mikill, en hann verður
skiljanlegri þegar aðstaðan er þekkt. — Um landið
sem er mjög bratt falla margir Iækir, sumir með
holbökkum, sem árlega ferst í eitthvað af lömbum.
Sum kafna af því að í þeim stendur þari, í gróðurlitl-
um vorum eru ærnar mjög við fjöru og flúðir, sum
löinbin hrapa þá í sjóinn út af klöppunum, þau eru
líka talin með vorlambadauðanum, sum fæðast dauð,
sem.fyrir kemur í flestum árum en allt af fátt.