Búnaðarrit - 01.01.1940, Page 103
BÚNAÐARRIT
101
inu, eins og síðar varð, þegar konungsvaldið l'ærð-
ist í aukana.
Eí'lir siðaskiptin tók lconungur i sínar hendur
nokkurn hluta af tekjum þeim, sem Hólar höfðu
áður haft. Rændu Danir ýmsum dýrgripum Hóla-
dómkirkju og fluttu til Danmerkur. Rírði þetta vald
Hóla nokkuð, en vegur staðarins var þó mikill enn.
Guðbrandur biskui> Þorláksson sat 56 ár að biskups-
slóli á Hólum, frá 1571—1627. Hann var duglegur
með afbrigðum, harðfylginn og búforkur mikill. Hann
geklc fast fram í því að festa hinn lútherska sið og
efla tekjur staðarins, sem minkað höfðu mjög og
eignir þorrið eins og áður er nefnt. Þó mun Guð-
brandur biskup einna frægastur fyrir bókaútgáfu
sína. Jón Arason flutti fyrstur prentsmiðju hingað
lil lands og lét prenta bækur. Guðbrandur biskup
keypti prentsmiðju þessa og hóf bókaútgáfu í stór-
um stíl. Eftir siðaskiptin var og prestaskóli stolnað-
ur á Hólum. Þetta tvennt, skólinn og bókaútgáfan,
ollu því, að Hólar urðu að teljast merkasta menn-
ingarsetur þjóðarinnar í meira en 200 ár, eftir siða-
skiptin. Að vísu var prentsmiðjan um eitt skeið
á þessu tímabili flutt í'rá Hólum, en var endurheimt
þangað aftur. Hin almenna hnignun þjóðarinnar á
16., 17. og 18. öld hlaut að hafa áhrif á gengi Hóla-
staðar. Sú saga verður ekki rakin. En um aldamótin
1800 er biskupsstóll fluttur frá Hólum, svo og prent-
srniðja og skóli. Nefnd konungsskipuð varð sammála
um að svipta Hóla þessu öllu. Stólsjarðirnar voru
seldar. Má segja að þá hafi verið unnið að því eins og
unnt var, að höggva hverja grein af langfrægasta
menningarmeið Norðlendinga.
Eftir þetta lenda Hólar í einkaeign, en þó sátu þar
prestar um sinn. Benedikt prófastur Vigfússon sal
á Hólum, frá 1827 lil 1861. En frá þeim tíma hefir
enginn andlegrar stéttar maður selið þar. Séra Benc-