Búnaðarrit - 01.01.1940, Page 113
Sau ðfj á r r ækt ar búi n
. árið 1938—1939.
Eflir Halldór Pálsson.
Sömu sauðfjárræktarbú nutu styrks samkvæmt
búfjárræktarlögunum árið 1938—1939 eins og árið
áður.
Skýrsla búanna fýlgir hér með. Á henni er marg-
víslegan fróðleik að finna og þarf lesandinn lítilla
skýringa við sjálfa skýrsluna.
Skýrslan i'rá Ólafsdal er ófullkomin að þessu sinni,
sem orsakast af því að á þessu ári stóð til, að eigenda-
skipti yrðu á búinu, sem raun varð á, en of seinnt
lil þess að skýrsluhaldið yrði fullkomið fyrir það ár.
í fyrstu dálkunum um þunga ánna og þyngdar-
auka þeirra frá hausti til vors sést, hve vænt féð var
og hvernig það var fóðrað. Athyglisvert er, hve mjög
misjafnlega ærnar hafa verið fóðraðar, ef dæma
skal eftir því, hve mikið þær þyngjast eða léttast frá
nóvember til apríl (venjul. aprílloka), og höfum við
ekki annan mælihvarða betri um fóðrunina. Á Græna-
vatni og Þórustöðum er fóðrunin ineð afbrigðum
góð. Þar þyngjast ærnar að meðaltali um tæp 7 kg.
Er það allt að þvi. þungi fóstursins eins og það mun
vega í apríl, ef ærnar væru yfirleitt einlembdar, en
á þessum bæjum var meira en helmingur þeirra með
tveimur lömbum.
Verst eru ærnar fóðraðar á Stafafelli og Breltku í
Lóni, en á öllum hinum búunum halda þær allt að