Búnaðarrit - 01.01.1940, Síða 124
122
BÚNAÐARRIT
svo stöddu er því með öllu óvíst um afkomu þessa
bús á næstunni.
Rangá. Kynbótabúið á Rangá er annað elzta kyn-
bótabúið, sem nú er starfrælct undir eftirliti Bún-
aðarfélags íslands. Fjárstofninn þar er upphaflega
ættaður frá Möðrudal og úr Þingeyjarsýslu. Féð á
Rangá er yfirleitt vel vaxið og sæmilega holdgott.
Um skeið, einkum á árunum i kringum 1930 var af-
koma búsins ekki góð og féll það í áliti þess vegna um
stundarsakir. Orsökin til þessa mun fyrst og fremst
hafa verið hin magnaða ormaveikisplága, sem al-
þekkt var um Austurland á þeim árum. Féð varð á
sama tíma afurðalítið og fóðurþungt og dró það eðli-
lega úr sölu kynbótafjár frá búinu. Nú eftir að farið
var að nota ormalifið hefir heilsa fjárins farið mjög
batnandi, enda hefir búið gefið ágætan arð síðustu
2 árin. Framtíðarhorfur þess eru því góðar, nema
ef langvarandi þvingunarráðstafanir gegn fjárflutn-
ingum, vegna garnaveikinnar, sem mjög 'er útbreidd
á Austurlandi, gera því verulegt tjón.
Höfðabrekka. Búið á Höfðabrekku hefir aðeins not-
ið styrks um fárra ára skeið. Féð þar er íremur smá-
vaxið, vel byggt, J)étt og al!J)olslegt. Þar heimafyrir
hefir féð gefið fremur góðan arð, enda verið vel
fóðrað. Frá Höfðabrekku hefir fremu fátl fé verið
selt til kynbóta og l>ví miður hefir sumt af því reynst
mun verr en gera mátti ráð fyrir eftir útliti stofnsins
og afurðum búsins.
Nú er með öllu óráðið, hvað verður um Jætta bú,
J)ví að bústjórinn hr. Þorsteinn Einarsson frá Höfða-
brekku hefir orðið að bregða búi.
Stafafell og fírelcka í Lóni. Árið 1932 var stofnað
l'járræktarbú að Stafafelli og á Brekku í Lóni. Bú
þessi hafa verið talin eitt bú, enda þótt sinn sé eig-
andi að hvoru þeirra, og ólíkir fjárstofnar á búun-
um og aðgreint skýrskuhald.