Dvöl - 01.10.1939, Page 26

Dvöl - 01.10.1939, Page 26
264 Hún færðist nær stólnum, sem hann sat i — en lézt vera að svip- ast um eftir einhverju á arinhill- unni. „Þú ert lagleg í kvöld,“ sagði hann. Og allt í einu teygði hann sig út fyrir stólinn og greip hana. Hún veinaði upp yfir sig; svona leikaraskap kærði hún sig ekki um, þegar hún var komin í bezta silki- kjólinn sinn. En hann hélt henni fastri og við það varð hún að sætta sig. Svo hvíslaði hann nokkrum orðum í eyra hennar. Skyndilega vatt hún sig lausa og sló hann utan undir. Hann stökk á fætur. Andlit hennar og grannur, stífur hálsinn, voru sett rauðum flekkjum. „Já, einmitt," sagði hún og greip andann á lofti, „einmitt! Ósvífni dóninn þinn. Hvað heldurðu eigin- lega, að ég sé? Viltu gera svo vel að minnast þess, að ég er eigin- konan þín. Ég skal kenna þér að bera virðingu fyrir mér, Gomer Vaughan." Þrátt fyrir allt var undirstraumur ótta í fyrirlitn- ingar- og reiðirausi hennar. En nú var kviknað í honum. Hann hallaði sér fram, augun glóðu og hann hrópaði: „Það er nú einmitt það, mín á- gæta frú. Ég er sem sé mæta vel minnugur þess, að þú ert eigin- konan mín. Taktu nú eftir. Ég er búinn að fá nóg af skömmum þín- um og fýlusvip. Ég ræð ekki meiru í þessu húsi en þótt ég væri leigj- andi. Nú gerir þú eins og ég segi þér.“ D VÖL „Aldrei!“ æpti hún. „Aðra eins svívirðu hefi ég aldrei heyrt.“ „í hverju er sú svívirða fólgin?“ spurði hann æfur. „Þú sérð mig, er það ekki, þegar ég þvæ mér?“ Nú hörfaði hún undan honum, bersýnilega óttaslegin. „Aldrei hefi ég heyrt annað eins!“ sagði hún. f andlitsvöðva hennar kom kipringur, en augna- ráðið var eins og hún stæði and- spænis vofu. „Aldrei. Konan er öðruvísi en maðurinn.... Og al- drei horfi ég á þig. ... ekki á þenn- an hátt.“ Hann þokaðist nær henni. Hún sá tekna ákvörðun brenna í augum hans. Með snöggri hreyfingu þaut hún út úr herberginu, og hann varð of seinn á sér að hefta för hennar. Hún var komin út úr húsinu. Hann heyrði útihurðinni skellt. III Hann gekk þess ekki dulinn, hvert hún hefði flúið. Tvisvar áð- ur, þegar í hvað harðast hafði sleg- ið milli þeirra, hafði hún hlaupið til móður sinnar, frú Hopkins, sem var ekkja og rak sælgætisverzlun. Og svo eftir stundarkorn hafði frú Hopkins komið „til þess að minn- ast á það við hann“. Án efa kæmi hún í kvöld. Hann hataði hana. Hún kom að hálftíma liðnum. Jafnskjótt og Gomer sá föla, stóra, grimmdarlega andlitið hennar birt- ast í dyrunum, spennti hann að sér beltið og setti fram hökuna. „Veiztu, hvaða fréttir Blodwen

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.