Dvöl - 01.10.1939, Blaðsíða 41

Dvöl - 01.10.1939, Blaðsíða 41
D VÖL 279 þrátt fyrir þennan grimmilega að- skilnað, að hún væri honum ennþá einlæglega vinveitt. Hik hans við að beina fallbyss- unum að virkisveggjunum var ó- skiljanlegt þeim, sem ekki þekktu fjölskyldusögu hans. Hann sló sér upp herbúðum á völlunum norðan- megin kastalans (sem fyrir þá sök hafa borið nafn hans síðan), og hélt þar kyrru fyrir þangað til hon- um datt í hug að senda sendiboða með bréf til Önnu systur sinnar, þar sem hann bað hana heitt og alvarlega að læðast út úr kastal- anum um syðra hliðið, af því að hann mæti líf hennar svo mikils, og halda í suðurátt, þar til hún kæmi að bústað nokkurra vina, er hann átti þar. Skömmu síðar sá hann, sér til mikill undrunar, að framundan framvegg kastalans kom kona ríð- andi á hesti, með einum fylgdar- manni. Hún reið beint af augum fram á vellina, þar sem herbúðir hans voru. Hún var komin mjög nærri, þegar hann þekkti, að það var Anna systir hans, og varð hon- um mikið um, að hún skyldi hætta á útgöngu frammi fyrir hersveit- um hans, án þess að vita um fyrir- ætlanir þeirra; og fyrsta árásin gat hafizt á hverri stundu og tor- tímt henni varnarlausri. Hún fór af baki áður en hún var komin fast að honum, og hann sá, að þótt gamalkunnugt andlit henn- ar væri fölt, var það þó alls ekki með tárum, eins og það myndi hafa verið áður fyrr. Sannast sagt, ef trúa má frásögn fyrri tíma, var hann tárum nær af kvíða hennar vegna. Hann kallaði á hana inn í tjald sitt, frá augliti þeirra sem stóðu umhverfis, því að þótt marg- ir hermannanna væru heiðarlegir og alvarlega hugsandi, gat hann ekki þolað, að hún, sem hafði verið ástkær félagi hans í bernsku, yrði að þola forvitnisaugu þeirra i þess- ari miklu sorg sinni. Þegar þau voru orðin ein í tjald- inu, faðmaði hann hana að sér, því að hann hafði ekki séð hana síðan í byrjun ófriðarins — á þeim á- hyggjulausu tímum, þegar hann og maður hennar höfðu verið sama sinnis um gjörræði konungs, og ekki látið sér til hugar koma að þeir myndu verða andstæðingar. Hún var rólegri en hann, að því er sagan segir, og fyrri til að tala í samhengi. „William, ég er komin til þín,“ sagði hún, „en ekki til þess að bjarga sjálfri mér, eins og þú heldur. Hvers vegna, ó, hvers vegna heldurðu áfram að styðja þennan ólöglega málstað og valda okkur svo mikillar sorgar?“ „Segðu ekki þetta,“ svaraði hann fljótt. „Ef sannleikurinn er falinn á botni brunnsins, hvernig getur þú þá vænzt þess, að rættlætið riki á hærri stöðum? Ég fylgi réttlæt- inu, hvað sem í veði er. Anna, yfir- gefðu kastalann; þú ert systir mín;
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.