Dvöl - 01.10.1939, Side 91

Dvöl - 01.10.1939, Side 91
D VOL 329 sinni ódrepandi þrautseigju og þrályndi sveitamannsins, en þessi uppgötvun hans gerði aftur á móti Minot kleift að ljúka starfi sínu, sem sé að sigrast á hinni áður ólæknandi anaemia perniciosa. Önnur bók segir frá Rauða múrsteins- húsinu í Washington og starfsfólki þess. Spencer, er fann vörn gegn Klettafjalla- sýkinni, hinni laglegu og gáfuðu Alice Evans, sem þrátt fyrir litla skólamenntun fann „dauða i mjólk“, og að síðustu hinum djarflynda McCoy, er vann bug á páfagauksýkinni. Það er langt frá því að vera á meðalmanns færi að þýða slíka bók, sem Baráttan gegn dauðanum er. Stíls- einkenni höfundarins eru sérstæð og því erfitt að láta þau njóta sín á íslenzku máli, og ennfremur útheimtir efni bók- arinnar víðtæka þekkingu í læknisfræði. Þrátt fyrir þetta hefir þýðing hinna tveggja læknanema, þeirra Þórarins Guðnasonar og Karls Strand, tekizt prýði- lega. Hefir læknisfræðimenntun þeirra komið þeim í góðar þarfir og þá ekki síður smekkvísi þeirra í meðferð máls, enda höfðu þeir þegar unnið sér álit fyrir bókmenrtastarfsemi sína. Ytri frágangur bókarinnar er ágætur, pappír góður og prófarkalestur sérlega vandaður. í vetur hafa komið út óvenjulega marg- ar góðar bækur. Ég hefi séð og heyrt ýmsa dóma um það, hver muni vera bezt þeirra. Það má vitanlega lengi deila um slíkt; kemur þar til greina mismunandi smekkur og skoðanir um lestrarefni. Ég þori þó hiklaust að fullyrða, aö Baráttan gegn dauðanum er í hópi þeirra beztu, og að hún á erindi til allra. Hún er fjörlega og skemmtilega rituð og veitir ómetan- legan fróðleik um ýmsa af mestu vel- gjörðamönnum mannkynsins, sem því miður hættir alltof oft til þess að sveip- ast þokuhjúpi gleymskunnar. Haukur Kristjánsson. Jón Helgason: Úr landsuðri. Nokkur kvæði. Bókaútgáfa Heimskringlu. Reykjavík 1939. Þegar ég var unglingur, fór ég m. a. vanalega í fyrstu Rauðsgilsrétt á haustin. í hlaðna grjótveggi hennar hrundu mörg og stór skörð á hverju ári og var vaninn að hrúga upp í þau réttardagsmorguninn, af þeim, sem fyrstir komu að réttinni. Eitt haustið brá svo við, að þegar við komum á réttardagsmorguninn, voru allir veggir réttarinnar skarðlausir og prýðileg- ur frágangur á allri hleðslu þeirra, þar sem skörð höfðu komið í þá frá því haustið áður. Hvernig stendur á þessu? spurðu menn hverjir aðra. Brátt vitnaðist, að ungur drengur, um 10 ára að aldri, sonur bóndans og húsfreyjunnar á bænum, þar sem réttin stóð við túnfótinn, hafði um sumarið tekið það fyrir af sjálfsdáðum að hlaða upp alla réttina — auðvitað án nokkurs endurgjalds. Mér þótti þetta at- vik dálítið einkennilegt þá, en mér hefir ætíð fundizt ég skilja höfundinn úr land- suðri betur fyrir þetta tiltæki hans. — „Snemma beygist krókurinn til þess, sem verða vill." Hann er nú búinn að hlaða svo marga og trausta „réttarveggi" úr norrænum fræðum, að hann er orðinn fyrir alllöngu kunnur sem einn af mestu fræðimönnum Norðurlanda, þótt enn sé hann á bezta aldri. En nú eru það ekki forn fræði, sem vekja athygli islenzkrar þjóðar á þessum syni hennar við Eyrarsund, heldur ljóð — markviss og snjöll ljóð, ólík flestu því, sem birzt hefir af ljóðagerð hér að undan- förnu. Bókinni Úr landsuSri er skipt í tvo kafla. Pyrri kaflinn má segja að séu á- deiluljóð, en sá síðari ljóð ýmislegs efnis. Þó að margt sé vel gert í síðari kaflanum, er ekki að efa, að sá fyrri vekur meiri eftirtekt. Þar eru hárbeitt ádeiluljóð, þrungin af neyðarlegri kaldhæðni, þar sem mönnum finnst þeir kannast vel við ýmsa þjóðkunna menn.

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.